Nýverið héldu TM Software og ContentXXL International sameiginlegan kynningar- og notendaráðstefnudag í höfuðstöðvum TM Software að Urðarhvarfi 6. Góður rómur fór af deginum en TM Software er einkasöluaðili ContentXXL kerfisins á Íslandi.
ContentXXL er öflugt vefumsjónarkerfi byggt á .NET tækninni og hefur hlotið verðlaun fyrir lausnir í því umhverfi frá Microsoft. Fjöldi fyrirtækja á Íslandi hafa núþegar nýtt sér ContentXXL kerfið til að koma vefsvæðum sínum í betra horf og á kynningunni fóru fulltrúar þriggja yfir reynslu sína af kerfinu. Dögg Matthíasdóttir, vefstjóri Íslandspósts, Hreinn Hreinsson, vefritstjóri Reykjavíkurborgar, og Jóna Grétarsdóttir, markaðsstjóri ÁTVR, fóru yfir vefsvæði sín, markmið og árangur. Michael Nutz, sölu- og markaðsstjóri ContentXXL í Þýskalandi, kynnti síðan kerfið. Á notendaráðstefnunni fór hann svo yfir þær nýjungar sem hafa látið dagsins ljós í kerfinu og hvað sé í vændum, ásamt því að sýna hvernig unnt sé að nýta kerfið með Sharepoint ásamt því að kynna skemmtilega nýjung eins og WordToWeb
Starfsmenn TM Software fóru síðan yfir nýjar þjónustuleiðir TM Software og kynntu nýjan þjónustuvef.
TM Software
TM Software er framúrskarandi alhliða upplýsingatæknifyrirtæki sem nýtir þekkingu og hæfni starfsmanna til að styrkja starfsemi viðskiptavina. TM Software hefur meira en tveggja áratuga reynslu á markaði og er með sérstöðu í hugbúnaðarþróun, rekstri, ráðgjöf og búnaðarlausnum.
