Nýverið opnaði nýtt vefsvæði fjárfestingarfyrirtækisins Atorku www.atorka.is en starfsmenn TM Software unnu að uppsetningu vefsins og er honum stýrt í gegnum WebMaster vefumsjónarkerfið.
Á nýja vefsvæðinu geta einstaklingar auðveldlega fundið allar upplýsingar er snúa að fyrirtækinu sjálfu ásamt markaðsupplýsingum um fyrirtækið og fjárfestingar þess. Sérstök áhersla var lögð á að birta allar upplýsingar fyrir fjárfesta á sem aðgengilegastan hátt og er mikið af vefþjónustum og fjármálaupplýsingum frá Kauphöll Íslands tengdar inn á vefinn. Haft var að leiðarljósi við endurhönnun vefsvæðisins að það væri notendavænt og auðvelt aðgengi yrði að öllum upplýsingum. Að sögn Valdísar Arnardóttur, forstöðumanns samskiptasviðs hjá Atorku gekk samstarfið við TM Software mjög vel. ,,Áður en við lögðum af stað fórum við í ákveðna forvinnu og unnum þarfagreiningu með verkefnastjóra frá TM Software á vefnum okkar. Allt samstarf hefur gengið hratt og vel fyrir sig og hélt verkefnastjóri mjög vel utan um verkið frá upphafi til enda. Í alla staði gekk vinna vefsins mjög vel og öll vandamál sem upp komu leyst. Kerfið sjálft er einfalt í notkun og hentar vef eins og okkar mjög vel.“
Sterk heild með WebMaster
Nýja vefsvæðið er sett upp í vefumsjónarkerfinu WebMaster en mörg fjármála- og tryggingafélög landsins nýta sér það. Grunnkerfi WebMaster myndar sterka heild sem gerir notendum kleift að byggja upp og viðhalda veftré, texta, myndum, tenglum og fleiri upplýsingum á vefsvæðum auk þess sem það býður upp á öfluga leit í gagnagrunnum og fyrirspurnir.
TM Software
TM Software er framúrskarandi alhliða upplýsingatæknifyrirtæki sem nýtir þekkingu og hæfni starfsmanna til að styrkja starfsemi viðskiptavina. TM Software hefur meira en tveggja áratuga reynslu á markaði og er með sérstöðu í hugbúnaðarþróun, rekstri, ráðgjöf og búnaðarlausnum.
