22.08. 06

Á síðasta ári skrifuðu Reykjavíkurborg og TM Software undir samning um kaup borgarinnar á ContentXXL-vefumsjónarkerfinu. Það kerfi gerir alla miðlun upplýsinga á ytri og innri vefsvæðum borgarinnar einfaldari og aðgengilegri. Mikil greiningarvinna hafði farið fram varðandi uppbyggingu og ferla á vef Reykjavíkurborgar og mun nýi vefurinn sameina öll helstu vefsvæði borgarinnar undir slóðinni www.reykjavik.is.

Markmiðið með nýjum vef Reykjavíkurborgar er að bæta miðlun og auðvelda aðgengi að upplýsingum fyrir borgarbúa en vefsvæði borgarinnar er eitt mest sótta vefsvæði landsins. Lilja Ólafsdóttir, þáverandi forstöðumaður upplýsingatækniþjónustu Reykjavíkurborgar, sagði Reykjavíkurborg hafa látið gera athugun á ýmsum vefumsjónarkerfum sem í boði voru á markaðnum. „Þessi kerfi voru metin og niðurstaðan varð sú að ContentXXL kom best út. Kerfið fullnægði þörfum okkar og þeim skilyrðum sem við settum.“

Nýi vefurinn leit dagsins ljós 10. maí sl. og hafa miklar breytingar orðið á miðlun á efni og vinnuferlum starfsmanna Reykjavíkurborgar á vefnum en innleiðing vefumsjónarkerfisins stendur enn yfir. Áður viðhélt Reykjavíkurborg mörgum vefsíðum og öll efnisvinnsla var erfið og takmörkuð enda studdi þáverandi kerfi illa endurnýtanleika á efni. Með innleiðingu ContentXXL er þetta vandamál að verða úr sögunni. Innsetning og samnýting á efni, s.s fréttum, greinum, skjölum, stílsniðum o.fl., er orðin mun auðveldari og þannig sparast ófáar klukkustundir í viðhaldi á vefnum. Mikil notkun er á kerfinu á öllum sviðum Reykjavíkurborgar og margir að vinna í því á sama tíma. ContentXXL hefur þann ótvíræða kost að hægt er að vinna í því í gegnum bæði kerfisstjóra- viðmót og beint á vefnum sjálfum sem leiðir til þess að öll vinnsla og efnisinnsetning verður mun einfaldari. Annar kostur við ContentXXL eru öflugar aðgangsstýringar sem tryggja að hægt er að stýra nákvæmlega hver hefur aðgang til ritunar, breytinga og birtingar á efni. Einnig er hægt að nýta kerfið í að viðhalda ákveðnum vinnuferlum á vefnum sem aftur auðveldar stýringu á útgáfu efnis og tryggir heilindi þeirra gagna sem birtast. Birtingarreglur ContentXXL koma sér mjög vel enda er hægt að stýra því hvar greinar birtast, hversu lengi, hvenær og hversu oft á mismunandi stöðum. Umsjónarmenn vefsíðu Reykjavíkurborgar hafa nú meiri yfirsýn og stjórn á vefjum borgarinnar en áður sem gerir rekstur þeirra einfaldari og hagkvæmari.