30.05. 08

Nýverið hélt Skýrslutæknifélag Íslands í samstarfi við SVEF, samtök vefiðnaðarins, ráðstefnuna Árangursrík vefstjórnun sem fjallaði um vefi í rekstri og nýtingu mannafla. Tveir sérfræðingar TM Software héldu fyrirlestur á ráðstefnunni sem var vel sótt af fulltrúum ýmissa af helstu fyrirtækjum og stofnendum landsins.

Stærð vefteymis og Scrum aðferðafræðin 
Ráðstefnan var haldin á Grand Hótel og var ýmsum spurningum velt þar upp þ.á.m. um vefmál, úthýsingar, vefteymi og hugbúnaði. Soffía Kristín Þórðardóttir, ráðgjafi hjá TM Software, hélt fyrirlestur um hversu stór vefteymi eigi að vera og skoðaði það út frá stærð vefsins, flækjustigi hans og fjölda notenda. Pétur Ágústsson, verkefnastjóri hjá TM Software, hélt fyrirlestur um árangursríka verkefnastjórnun með Scrum aðferðafræðinni. Scrum er hugmyndafræði þar sem hugbúnaðarþróun, vöruþróun, verkefnastjórnun og almenn stjórnun renna saman. Í henni er gengið út frá því sjónarmiði að vinna í hugbúnaðarverkefnum sé vöruþróun en ekki framleiðsla. Hjá TM Software starfar stór hópur Scrum sérfræðinga jafnt í þróun sem ráðgjöf til viðskiptavina.

TM Software
TM Software er framúrskarandi alhliða upplýsingatæknifyrirtæki sem nýtir þekkingu og hæfni starfsmanna til að styrkja starfsemi viðskiptavina. TM Software hefur meira en tveggja áratuga reynslu á markaði og er með sérstöðu í hugbúnaðarþróun, rekstri, ráðgjöf og búnaðarlausnum.