03.03. 06

Undirbúningur verkefnisins hófst 1998 hjá TR og var mjög umfangsmikill en öll helstu fyrirtæki landsins á sviði hugbúnaðargerðar kepptust um að hreppa verkefnið. TM Software var eitt fjögurra fyrirtækja sem var boðið að gera tilboð í verkefnið að loknu forvali Ríkiskaupa. Var TM Software valið úr þessum hópi á grundvelli faglegrar þekkingar, tillögu að úrlausn og verðtilboðs. Fékk fyrir¬tækið hæstu einkunn hjá útboðsnefndinni fyrir alla þætti tilboðsins.

Friðrik Sigurðsson, forstjóri TM Software, segir það mikla áskorun og heiður fyrir fyrirtæki eins og TM Software að fá tækifæri til þess að takast á við verkefni eins og smíði Ölmu. „Það hafði lengi verið draumur forráðamanna fyrirtækisins að fá tækifæri til að smíða nýtt kerfi fyrir TR enda ljóst að smíði kerfisins yrði eitt stærsta og metnaðarfyllsta hugbúnaðarverkefni sem unnið hefur verið á Íslandi um árabil.“

Skráðir viðskiptavinir í Ölmu eru um 134.000. Á hverjum tíma geta allt að 100 starfsmenn TR og umboðsmanna stofnunarinnar um land allt unnið í kerfinu samtímis. Að jafnaði eru um 1.100 umsóknir skráðar í kerfið á mánuði. Í árlegum uppgjörum eru sóttar upplýsingar til Ríkisskattstjóra um tekjur u.þ.b. 43.000 einstaklinga sem fá tekjutengdar greiðslur og launagreiðslur þeirra frá TR stemmdar af miðað við skattframtöl. Eins og gefur að skilja er mikið gagnamagn sem teng¬ist þessum viðskiptum og var gagnagrunnurinn alls um 750 gígabæti í byrjun árs 2006.

Alma sækir upplýsingar til fjölda annarra kerfa til að geta sinnt upplýsingaskyldu og eftirlitshlutverki sínu. Þessi kerfi eru bæði innan TR og utan. Sem dæmi um tengingar við ytri kerfi má nefna ökutækjaskrá, þjóðskrá og kerfi Ríkisskattstjóra. Sem dæmi um tengingar við innri kerfi TR má nefna kerfi fæðingarorlofssjóðs, kerfi læknadeildar og legukerfi. Einnig eru sendar upplýsingar til Ríkisútvarpsins og Símans vegna afsláttarkjara lífeyrisþega.

Allt að 50 manns hafa starfað að smíði kerfisins – starfsmenn TM Software, starfsfólk TR, verktakar og ýmsir aðilar sem starfa í öðrum stofnunum og fyrirtækjum, t.d. Ríkisskattstjóra, Innheimtustofnum sveitarfélaga og Ríkisútvarpinu. Fullyrða má að á bak við kerfið liggi yfir 100.000 vinnustundir eða meira en 65 mannár.