17.02.
06
Dótturfélag TM Software, Maritech, hlaut nýlega viðurkenningu Hollvina hins gullna jafnvægis, Vogarskálina svonefndu, fyrir framúrskarandi starf í þágu aukins sveigjanleika og að auðvelda starfsfólki samræmingu starfs og einkalífs. Í starfsmannastefnu fyrirtækisins er kveðið á um að leitast skuli við að búa starfsfólki fjölskylduvænan vinnustað.
Vogarskálin var nú veitt í þriðja sinn á ráðstefnu Hollvina hins gullna jafnvægis, Hið gullna jafnvægi: Gjöfult verkefni. Viðurkenningin er veitt fyrir framúrskarandi starf innan fyrirtækja eða stofnana í þágu þess markmiðs að auka sveigjanleika og auðvelda starfsfólki samræmingu starfs og einkalífs. Sautján samtök, fyrirtæki og stofnanir eiga aðild að Hollvinum hins gullna jafnvægis: Alþýðusamband Íslands, Efling stéttarfélag, félagsmálaráðuneytið, Hugsmiðjan, IMG Gallup, Glitnir, Jafnréttisráð, Jafnréttisstofa, Landsbanki Íslands hf., Landsvirkjun, Orkuveita Reykja-víkur, Reykjavíkurborg, Samtök atvinnulífsins, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, Verzlunarmannafélag Reykjavíkur, Vinnueftirlitið og Vinnumálastofnun.
Í starfsmannastefnu Maritech er kveðið á um að leitast skuli við að búa starfsfólki fjölskylduvænan vinnustað. Til þess að vinna að því markmiði hefur starfsfólki, jafnt konum og körlum, meðal annars verið gert kleift að haga lengd og tilhögun vinnutímans eftir þörfum og aðstæðum í einkalífi sínu. Feður og mæður hafa haft sveigjanleika í tengslum við töku fæðingarorlofs. Ef þörf er á eiga starfsmenn kost á að taka börn sín með til vinnu og hefur sérstakt leikherbergi verið útbúið fyrir börnin þar sem skrifstofur Maritech á Íslandi eru til húsa, í Hlíðasmára 14 í Kópavogi. Nettenging gerir starfsfólki ennfremur í nokkrum mæli kleift að vinna að verkefnum sínum heima eða á öðrum starfsstöðvum innan fyrirtækisins. Þetta eru aðeins örfá dæmi um þann sveigjanleika sem stendur starfsfólki Maritech til boða í þeim tilgangi að auðvelda því samræmingu vinnu og einkalífs.
Hjá TM Software í heild og dótturfélögum fyrirtækisins er rekin sambærileg stefna varðandi samræmingu starfs og einkalífs og hjá Maritech. Í tilkynningu frá Hollvinum hins gullna jafnvægis segir m.a. að viðurkenningarhafinn í ár, Maritech og móðurfélagið TM Software, sé gott dæmi um hvernig fyrirtækjamenning sem tekur mið af alþjóðlegu starfsumhverfi annars vegar og stefna sem krafa er gerð um í íslensku jafnréttissamfélagi nútímans hins vegar geti virkað saman í þá veru að samræma það besta úr heimi hins alþjóðlega samfélags og hins íslenska.