12.01. 06

Í byrjun janúar heimsótti þingflokkur Framsóknarflokksins höfuðstöðvar TM Software í Kópavogi en heimsóknin var liður í vikuyfirferð þingflokksins þar sem um 70 fyrirtæki og stofnanir á höfuðborgarsvæðinu voru heimsótt. Þau sem sóttu TM Software heim voru Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og þingmennirnir Dagný Jónsdóttir, Jónína Bjartmarz, Magnús Stefánsson og Andrés Pétursson.

Það verður að teljast jákvætt þegar þingmenn og ráðherrar gefa sér tíma til að taka púlsinn á atvinnulífinu eins og hér var gert en með því nálgast þeir einstök fyrirtæki frekar en að skoða viðkomandi atvinnugrein í heild sinni. Á móti gefst fyrirtækjunum kostur á að kynna starfsemi sína og einnig að gefa stjórnmálamönnunum dýpri mynd af þeirri atvinnugrein sem við á og því starfsumhverfi sem fyrirtækið hrærist í.

Má þar m.a. nefna málefni eins og skerta samkeppnisstöðu íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja gagnvart þjónustu opinberra fyrirtækja og erfiða stöðu útflutningsfyrirtækja vegna hás gengis íslensku krónunnar eins og var á þeim tíma. Þá var einnig rætt um óheppilegt fyrirkomulag virðisaukaskattsskyldu í vissum atvinnugreinum þar sem starfsemi er undanþegin virðisaukaskatti. Það veldur því að upplýsingatæknifyrirtæki geta illa keppt við þjónustu fyrirtækja í viðkomandi grein.
Ljóst er að tækifærin eru til staðar og ef rétt er að málum staðið mun Ísland verða í fararbroddi þjóða í nýtingu upplýsingatækni eins og kemur fram í stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið, „Auðlindir í allra þágu“.