06.05. 10
Stefán Þór Stefánsson, forstöðumaður virðisaukandi lausna hjá TM Software afhendir hér Hjördísi Guðmundsdóttur vinninginn.

 

TM Software tók þátt í ráðstefnunni RIMC 2010 sem haldin var í Smáralindinni í mars. Fyrirtækið kynnti þar vörur sínar, lausnir og þjónustu og buðu þátttakendum ráðstefnunnar einnig að taka þátt í lukkuleik.

Það eina sem þátttakendur þurftu að gera var að skilja upplýsingar sínar eftir í happakassa sem var staðsettur á sýningarbásnum. Fjölmargir ráðstefnugestir freistuðu gæfunnar en sú sem hafði heppnina með sér var Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsinga- og kynningafulltrúi, Flugstoða. Hún hlaut í vinning Canon Ixus 95 stafræna myndavél að verðmæti um 40.000.  

TM Software er framúrskarandi hugbúnaðarfyrirtæki sem nýtir þekkingu, reynslu og hæfni starfsmanna til að styrkja starfsemi viðskiptavina sinna. 

Við erum sérfræðingar á sviði:

 

  • Vefflausna - Viðskiptalausnir fyrir Internetið
  • Samþættingar og sérlausna - Þjónustumiðuð högun
  • Viðskiptagreindar - Stjórnendaupplýsingar og viðskiptaferlar

 

TM Software er í eigu Nýherja samstæðunnar