Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, opnar upplýsingavefinn www.bonds.is
Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra opnaði 15. nóvember sl. nýjan upplýsingavef www.bonds.is á ráðstefnu um íslenskan skuldabréfamarkað á Hótel Nordica. Lánasýsla ríkisins, Íbúðalánasjóður, Glitnir, Kaupþing banki, Landsbanki, MP Fjárfestingarbanki, Straumur-Burðarás og Kauphöll Íslands standa að vefnum sem TM Software hannaði.
Markmiðið með vefnum er að þar sé hægt að sækja allar helstu upplýsingar er varða íslenskan skuldabréfamarkað og veita meira innsæi í íslenskt hagkerfi. Töldu forráðamenn fyrrtaldra stofnana og fyrirtækja nauðsynlegt að setja upp vef með slíkum upplýsingum þar sem áhugi á íslensku atvinnulífi og fyrirtækjum hefur aukist mikið erlendis. Vefurinn á að tryggja að erlendir fjárfestar geti nálgast nýjustu upplýsingarnar um íslenskan markað, styrkja upplýsingaflæði til þeirra, auka þekkingu þeirra á íslenska skuldabréfamarkaðnum ásamt því að auka þátttöku erlendra fjárfesta á íslenska skuldabréfamarkaðnum.
Á hinu nýja vefsvæði er kappkostað að styðja við markaðsaðila með því að veita lifandi og nákvæmar upplýsingar um íslenska hagkerfið, s.s. framkvæmd og niðurstöður útboða á skuldabréfum, gengi skuldabréfa og gjaldmiðla, útgefið efni fjármálafyrirtækja og stofnana og fréttir af markaðnum. Vefurinn er gagnvirkur að því leyti að notendur geta stjórnað forsendum útreikninga og birtingu upplýsinga sem þeir sækja á vefsvæðið. Sem dæmi má nefna að notendur geta fengið línurit sem sýnir þróun verðs eða kröfu Ríkisverðbréfa fyrir 4, 12, 24 eða 52 vikur.
Lánasýsla ríkisins og TM Software hafa átt í samstarfi síðan árið 2001 um veflausnir fyrir Lánasýsluna en TM Software hefur víðtæka reynslu í þróun viðskiptalausna fyrir Internetið og rafrænni miðlun fjármálaupplýsinga fyrir fjármálafyrirtæki og fyrirtæki skráð í Kauphöll Íslands.
