03.06. 10
Inspired by Iceland

Vefsvæðið Inspired by Iceland var nýverið sett í loftið en það er liður í markaðsátaki fyrirtækja og stofnana tengdri ferðaþjónustu til að auka komur ferðamanna til Íslands. Hópurinn fékk TM Software  í lið með sér til að setja upp vefsvæðið sem skartar m.a. stórstjörnunum Viggo Mortensen, Eric Clapton og Yoko Ono. Vefsvæðið er sett upp í vefumsjónarkerfinu VYRE Unify og hluti lausnarinnar þróuð í Google App Engine. Íslenska auglýsingastofan hannaði lausnina. 

Á vefsvæðinu geta einstaklingar hvaðanæva að deilt sögum sínum um Ísland og sett inn myndir og myndbönd tengd þeim. Heimsþekktir listamenn segja þar einnig frá kynnum sínum af landinu og áhrif þess á þá. Á síðunni geta notendur að auki fundið ýmsar upplýsingar tengdar ferðalögum til Íslands m.a. gistingu, menningu og listum og mat. Vefsvæðið er í stöðugri þróun og bætist iðulega við nýtt efni á hana. 

VYRE Unify er  vefumsjónarkerfi til að byggja og viðhalda vefsíðum og veflausnum þar sem miklar kröfur eru gerðar til sveigjanleika og skalanleika. Kerfið er mjög öflugt til að halda utan um mikið af gögnum, líftíma gagna, útgáfustjórn og flókin tengsl milli ólíkra efnisflokka og hentar því fullkomlega fyrir vefsvæði eins og Inspired by Iceland.