11.06. 10
Átt þú falinn fjársjóð á netinu?

 

Í apríl hélt TM Software morgunverðarfundinn Vefverslanir – átt þú falinn fjársjóð á netinu? En hann var liður í morgunverðarfundarröð TM Software sem haldin var í vetur. 

Þar hélt Soffía Kristín Þórðardóttir, ráðgjafi hjá TM Software, fyrirlestur um vefverslanir. Hún fór yfir kauphegðun Íslendinga á netinu, lög og reglur á vefnum og loks hönnun og viðmót vefverslana. Soffía sýndi fjölmörg dæmi um það hvað sé nauðsynlegt að huga að við uppsetningu vefverslana og einnig hvað ber að varast, ásamt því að fara yfir nauðsyn þess að mæla árangur vefsíðna og herferða á netinu. 

Einar S. Einarsson, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs Vínbúðarinnar fór síðan yfir þær breytingar sem hafa orðið á vefsvæði þeirra undanfarin ár og hvernig þróun vefverslunar þeirra hefur verið. Vefur Vínbúðarinnar er settur upp í vefumsjónarkerfinu ContentXXL og þjónustaður af sérfræðingum TM Software.   

 

Glærur fyrirlesara má nálgast hér og myndir frá ráðstefnunni hér.

Allar nánari upplýsingar varðandi vefverslanir,lausnir og þjónustu TM Software veita Brynjar Kristjánsson, brynjar@tmsoftware.is og Magnús Ingi Stefánsson, mis@tmsoftware.is