Nýverið setti TM Software nýja útgáfu af Tempo tímaskráningarkerfinu, Tempo 5.0, í loftið. Tempo er þróað af starfsmönnum TM Software og er viðbót ofan á verkbeiðna- og þjónustukerfið JIRA frá Atlassian.
Tempo tímaskráningarkerfið auðveldar allt utanumhald varðandi útgáfu reikninga og tímaskýrsla og getur leitt til töluverða hagræðingar hjá fyrirtækjum. Sérfræðingar okkar hafa unnið hörðum höndum að hinni nýju útgáfu og tekið m.a. mið af beiðnum frá viðskipavinum varðandi viðbætur og endurbætur. Meðal nýjunga má nefna: Aðlögun að nýju notendaviðmóti JIRA 4.1, einfaldara vinnuferli varðandi tímaskráningu og samþykkt tíma, betri yfirsýn yfir stöðu verka og aðgengilegra reikningaferli.
Tempo veitir stjórnendum og starfsmönnum betri yfirsýn varðandi tíma, verkefnastýringu og útgáfu reikninga. Forritið er hægt að kaupa fyrir mismunandi stóra vinnuhópa en einnig er unnt að hala því ókeypis niður og fá 30 daga reynslu áður en hugað er að kaupum. Allar nánari upplýsingar um Tempo er að finna hér.

