08.07. 10

Þau leiðu mistök urðu í morgun þegar Viðskiptablaðið birti frétt um TM Software ehf. sem var bæði mjög villandi og með rangar upplýsingar. Það rétta í málinu er eftirfarandi:

Roka ehf, dótturfyrirtæki Nýherja, hefur verið úrskurðað gjaldþrota en TM Software ehf. er í fullum rekstri. TM Software hefur skilað hagnaði á árinu og er afkoman betri en áætlanir gerðu ráð fyrir.

 Nánari upplýsingar veitir Ágúst Einarsson, framkvæmdastjóri TM Software (ae@tmsoftware.is).