29.11. 06
Laila Sæunn Pétursdóttir, markaðsdeild, afhendir samstarfskonum Bjargar H. Sölvadóttur verðlaunin en þær tóku við verðlaunum fyrir hennar hönd.

Árleg þjónustukönnun TM Software var gerð í sumar meðal viðskiptavina félagsins. Könnunin var unnin í samvinnu við ráðgjafafyrirtækið Intellecta ehf. sem sá um alla úrvinnslu.

Árleg þjónustukönnun TM Software var gerð í sumar meðal viðskiptavina félagsins. Könnunin var unnin í samvinnu við ráðgjafafyrirtækið Intellecta ehf. sem sá um alla úrvinnslu. Könnunin var send til allra viðskiptavina TM Software en markmiðið var að kanna hvernig félagið getur bætt þjónustu sína og betur mætt þörfum viðskiptavina.

Þátttaka var mjög góð og viljum við þakka viðskiptavinum okkar fyrir hana. Þeir aðilar sem sendu inn svör voru settir í pott og nýverið voru tvö nöfn dregin úr. Vinningshafarnir voru Björg H. Sölvadóttir hjá Tryggingastofnun Ríkisins og Hannes Árnason hjá Icelandair. Hlutu þau bæði gjafakort á Argentínu steikhús ásamt osta- og brauðkörfu frá Jóa Fel fyrir sig og vinnufélaga sína.