TM Software og Slysavarnarfélag Landsbjargar (SL) hafa gert samning sín á milli um gerð nýs skráningarkerfis fyrir Björgunarskóla SL. Sérfræðingar TM Software hafa unnið að greiningu á kerfinu frá því í haust en gert er ráð fyrir að kerfið verði tilbúið í mars 2007.
Nýja skráningakerfið er sett upp í Microsoft Visual Studio .net 2005. Markmiðið með þessu nýja kerfi er m.a. að geta haldið utan um námskeið, nemendur og námskrá Björgunarskólans með hagkvæmum hætti og í notendavænu viðmóti. Björgunarskóli SL er hluti af sjálfboðaliðafélaginu og heldur hann uppi öflugu fræðslustarfi, bæði fyrir félaga í samtökunum og aðra landsmenn. Á hverju ári eru haldin um 250 námskeið um land allt og er fjöldi þátttakenda um 2500 manns ár hvert. Skólinn er farskóli sem heldur námskeið í húsnæði björgunarsveita um land allt og er í fararbroddi í þróun fræðslustarfs björgunarsveita í landinu. Því er afskaplega mikilvægt að haldið sé vel utan um alla þætti skólans og munu umsjónarmenn skólans og nemendur geta sótt upplýsingar með nýja kerfinu um t.d. námskeið nemenda og hvaða námskeið nemendur eiga eftir til að ná markmiðum Björgunarskólans.
