Herstjórinn er póstlista- og herferðakerfi sem býður upp á mikla möguleika í útsendingu efnis og utanumhaldi upplýsinga sem sendar eru á fyrirfram skilgreinda póstlista.
Veitir góða yfirsýn
Með herstjóranum er á mjög einfaldan hátt hægt að skrifa tölvupóst, setja inn sniðmát og hlekki og senda póst til áskrifenda póstlista. Eftir póstsendinguna er hægt að fá góða yfirsýn yfir herferðir og útsendingar með því að skoða hversu oft áskrifendur nýta sér hlekki og smella á þá. Í Herstjóranum er hægt að búa til fjölda póstlista, setja inn sniðmát af ýmsum gerðum og nýta eldri sniðmát og tölvupósta svo hægt sé að halda sama útliti og innihaldi.
Herstjórinn er í íslensku viðmóti og er einstaklega fljótlegur og einfaldur í uppsetningu. Öllum aðgerðum Herstjórans er stjórnað í vafra svo notendur geta sent tölvupósta og sett af stað herferðir hvar sem þeir eru staddir svo lengi sem þeir hafa aðgang að Internetinu. Notendafjöldi Herstjórans er ótakmarkaður og er hægt að stilla aðgangi notenda eftir hlutverki þeirra.
Miklir möguleikar
Með Herstjóranum er auðveldlega hægt að vinna með markhópa með beinum hætti og allt eftir þörfum hvers og eins. Með því að hafa samskipti við viðskiptavini á beinan hátt er hægt að byggja upp sterkan og góðan viðskiptavinahóp sem auðvelt er að ná til á hagkvæman og fljótlegan máta með Herstjóranum. TM Software býður upp á mismunandi stærðir pakka og lausna sem unnt er að sérsníða að þörfum hvers og eins fyrirtækis en einnig er hægt að fá staðlaða pakka.
Frekari upplýsingar um Herstjórann TM Software fást í síma 545 3000, í tölvupósti info@tmsoftware.is og á vefsíðu TM Software undir http://tmsoftware.is/forsida/vorur/vara/item2732/?WT.cg_n=innri-leit&WT.cg_s=vorur
TM Software er framúrskarandi alhliða upplýsingatæknifyrirtæki sem nýtir þekkingu og hæfni starfsmanna til að styrkja starfsemi viðskiptavina. TM Software hefur meira en tveggja áratuga reynslu á markaði og er með sérstöðu í hugbúnaðarþróun, rekstri, ráðgjöf og búnaðarlausnum
i og er með sérstöðu í hugbúnaðarþróun, rekstri, ráðgjöf og búnaðarlausnum

