Þegar fellibylurinn Nargis skall á Myanmar í byrjun maí leitaði Microsoft Corporation eftir því að TM Software, ásamt nokkrum öðrum samstarfsaðilum Microsoft, styrkti hjálparstarfið á hamfarasvæðunum með því að útbúa lausn byggða á SharePoint fyrir Sameinuðu þjóðirnar. Lausnin snýst um að halda utan um öll gögn og miðlun upplýsinga á hamfarasvæðinu þar sem tugir hjálparstofnana koma að hjálparstarfinu og er nauðsynlegt að allar upplýsingar séu til staðar fyrir þær.
Lausn fyrir alla sjálfboðaliða
Eftir að fellibylurinn dundi yfir Myanmar komu margar stofnanir að hjálparstarfinu t.a.m. með læknisaðstoð, mataraðstoð, vatnsaðstoð, tjaldaaðstoð og barnaaðstoð. Til að samskipti milli þessara stofnana geti farið skilvirkilega fram og allar upplýsingar séu til staðar fyrir alla sjálfboðaliða og starfsmenn stofnana bauð Microsoft fram aðstoð sína með því að setja upp SharePoint samskiptavef. Vegna SharePoint sérþekkingar starfsmanna TM Software leitaði Microsoft Corporation til félagsins og voru sérfræðingar TM Software í SharePoint fengnir inn í stóran hóp Microsoft samstarfsaðila og starfsmanna Microsoft um heim allan. „Lausnin var smíðuð frá grunni og vorum við í kringum 30-35 manns sem tókum þátt í því. Það tók tæpa viku að smíða lausnina og setja hana upp en það gekk svona hratt því einungis var fengið toppfólk í verkefnið,“ sagði Magnús Ingi Stefánsson, verkefnastjóri hjá TM Software en hann hefur ásamt Þórmundi Helgasyni unnið í þessu verkefni fyrir hönd TM Software ásamt öðrum.
Annast viðhald og áframhaldandi þróun
SharePoint vefsvæðið http://myanmar.humanitarianinfo.org/ hefur verið í loftinu síðan 14. maí eða rétt rúmlega viku eftir að hörmungarnar dundu yfir og hefur verið í sífelldri þróun síðan þá. Áætlað er að vefsvæðið verði í notkun í sex til sjö mánuði í viðbót en TM Software sér um allt viðhald og áframhaldandi þróun á því.
„Vegna þeirrar sérfræðiþekkingar sem til staðar er hjá TM Software hafa sérfræðingar félagsins fengið verkefnið í sínar hendur og munu annast viðhaldið á vefsvæðinu í þá mánuði sem búist er við að þörf verði á því. Það var einstaklega gott að vinna með starfsfólki TM Software. SharePoint færni þeirra er mjög góð og því urðu þau fyrir valinu í þessu samstarfsverkefni“, sögðu Gísli Ólafsson sem leiddi hjálparstarfið í Myanmar fyrir hönd Microsoft og Jón Harry Óskarsson verkefnastjóri yfir Myanmar verkefninu og ráðgjafi stórfyrirtækjalausna hjá Microsoft Íslandi.
TM Software
TM Software er framúrskarandi alhliða upplýsingatæknifyrirtæki sem nýtir þekkingu og hæfni starfsmanna til að styrkja starfsemi viðskiptavina. TM Software hefur meira en tveggja áratuga reynslu á markaði og er með sérstöðu í hugbúnaðarþróun, rekstri, ráðgjöf og búnaðarlausnum.
