TM Software hefur byggt um nýjan farsímavef fyrir Icelandair. Viðskiptavinir Icelandair geta nú skoðað komur og brottfarir og flugáætlanir Icelandair sem og innritað sig í flug og séð upplýsingar um tengiliði í viðkomandi landi í farsíma sínum.
Farsímavefurinn er nýr þjónustuvefur hjá Icelandair sem geymir sömu upplýsingar varðandi flug og er að finna á vefsvæðum flugfélagsins. Þetta eykur enn frekar þjónustuna við farþega Icelandair þar sem m.a. er unnt að sjá komur og brottfarir, innrita sig í flug og velja sæti allt í gegnum farsímann. Sérfræðingar TM Software settu vefinn upp í vefumsjónarkerfinu VYRE sem vefsvæði Icelandair er einnig sett upp í. Allir nýjustu farsímar á markaðnum voru prófaðir til að tryggja að upplýsingarnar kæmu rétt fram í þeim þ.á.m. var iPhone síminn.
Viðskiptavinir Icelandair geta nú nýtt sér þessa þjónustu og innritað sig með farsímanum sínum svo lengi sem þeir geta tengst Internetinu. Með farsímainnrituninni er hægt að innrita sig óháð stað og stund (22 klst. fyrir brottför). Brottfararspjaldið er síðan prentað út á sjálfsafgreiðslustöðvum á flugvelli og/eða á Hilton Reykjavík Nordica. Þeir farþegar sem ferðast með farangur þurfa að skrá hann inn í sjálfsafgreiðslustöð á flugvelli og fá töskumiða fyrir hverja tösku. Þegar farþegi hefur innritað sig sjálfur í flug tekur starfsmaður Icelandair við farangri hans á sérstakri hraðleið. Þeir sem engan farangur hafa halda beint út á brottfararsvæðið.
Búið er að setja upp farsímavefinn á íslensku og á ákveðnum áfangastöðum Icelandair. Meðal farsímavefsvæða er http://m.icelandair.is og áætlað er að bæta þessari þjónustu við á fleiri áfangastöðum.
TM Software
TM Software er framúrskarandi alhliða upplýsingatæknifyrirtæki sem nýtir þekkingu og hæfni starfsmanna til að styrkja starfsemi viðskiptavina. TM Software hefur meira en tveggja áratuga reynslu á markaði og er með sérstöðu í hugbúnaðarþróun, rekstri, ráðgjöf og búnaðarlausnum.

