03.08. 10

Tekjur TM Software hafa vaxið um 13% miðað við síðasta ár og má auknar tekjur fyrirtækisins reka til betri verkefnastöðu og meiri eftirspurnar.

Aukin sala er í mörgum af helstu vörum fyrirtækisins, svo sem TEMPO tímaskráningarkerfinu, sem nú er selt í tæplega 40 löndum. Einnig má nefna Vyre vefumsjónarkerfið sem nýlega var notað í InspiredByIceland verkefninu, WebMaster áheitakerfi og SharePoint aðgerðarstjórnun yfir opinbera aðila.