30.08. 10

Einstakur árangur náðist í áheitasöfnun fyrir hátt í 100 góðgerðarfélög í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka og Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR), sem fram fór 21. ágúst. Hátt í 30 mkr. söfnuðust í gegnum áheitavef sem TM Software þróaði fyrir átakið en það er tæplega þrefalt hærri upphæð heldur en safnaðist í gegnum netið árið á undan.

Í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka hefur um árabil gefist kostur á því að heita á keppendur og styrkja gott málefni og hafa tugmilljónir króna safnast í gegnum átakið. Íslandsbanki og ÍBR brugðu á það ráð í ár að gera áheitasöfnunina skilvirkari og opnuðu sér vefsvæði, hlaupastyrkur.is. Íslandsbanki fékk TM Software til þess að þróa vefsvæðið en viðmót þess var gert í samvinnu við auglýsingastofuna Hvíta húsið. Markmiðið var að útbúa kerfi sem gerði áheitasöfnun skemmtilega og einfalda. Á vefsvæðinu var hægt að heita á keppendur, hópa og einstaklinga, sem hlupu fyrir einstök góðferðarfélög. Einnig var hægt að heita á keppendur með því að senda SMS.

Bjarney Harðardóttir markaðsstjóri hjá Íslandsbanka segir að árangur söfnunarinnar hafi komið öllum skemmtilega á óvart. "Við fórum frekar óhefðbundnar leiðir í markaðssetningu á áheitavefnum; kynntum hann að mestu leyti í gegnum netið. Kynningin hefur hins vegar náð til margra enda um gott málefni að ræða. Þá er vefurinn sérlega aðgengilegur og einkar auðvelt að heita á keppendur. Við erum því afar ánægð með þá upphæð sem safnaðist og samstarfið við TM Software."

Þá má geta þess að rúmlega 26 milljónir króna söfnuðust í gegnum samskonar áheitakerfi fyrir Mottumars vakningarátak um karlmenn og krabbamein, síðasta vetur.

Áheitakerfið er þróað í Webmaster vefumsjónarkerfi, sem er íslenskur hugbúnaður frá TM Software. Nánar um Webmaster.