17.05. 06

TM Software hefur sett upp sex sjálfsafgreiðslustöðvar fyrir innritun farþega í innritunarsal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Þetta er viðbótarþjónusta sem flugfarþegum er boðið upp á og geta þeir nú valið um að innrita sig sjálfir eða nota hefðbundna þjónustu við innritun.

Sjálfsafgreiðslustöðvarnar eru staðsettar í innritunarsal flugstöðvarinnar en þar geta flugfarþegar innritað sig sjálfir og valið sér sæti í flugvélinni án nokkurra vandkvæða. Viðkomandi farþegi slær annaðhvort inn bókunarnúmerið sitt á snertiskjá eða stingur inn greiðslukortinu sínu í þar til gerða rauf. Þegar velja skal sæti birtist mynd af flugvélinni sem sýnir hvaða sæti eru laus og getur farþeginn valið um þau. Loks kemur að farangrinum en þá er farþeginn inntur eftir því hversu margar töskur eru meðferðis og prentast út límmiðar í samræmi við fjölda taskna. Miðana sér viðkomandi um að líma sjálfur á töskurnar. Þegar farþeginn hefur innritað sig fer hann með farangur sinn að sérstakri hraðleið (e. Fast BagDrop-off). Þar vigtar starfsmaður farangurinn og athugar hvort allt sé innan leyfilegra marka. Þeir sem eru hins vegar einungis með handfarangur geta haldið rakleitt í átt að öryggishliðunum. Sem stendur geta einungis viðskiptavinir Icelandair nýtt sér sjálfsafgreiðslustöðvarnar en búist er við að önnur flugfélög fylgi fljótlega í kjölfarið.

Sjálfsafgreiðslustöðvarnar eru frá framleiðandanum IER og hugbúnaðurinn kemur frá CSC sem þróaði m.a. innritunarkerfi fyrir Icelandair og SAS. TM Software veitir Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Icelandair Ground Service sólarhringsþjónustu allan ársins hring en það tryggir lágmarkstöf ef einhver tæknileg vandamál koma upp