29.10. 10

Inspired By Iceland kynningarherferðin bar sigur úr býtum í úrslitum markaðsverðlauna ICCA-samtakanna, sem fór fram í Hyderabad á Indlandi. TM Software annaðist uppsetningu vefjar átaksins, sem stóð yfir í sumar og hafði að markmiði að vekja athygli á Íslandi sem áfangastað erlendra ferðamanna.

Á Inspired by Iceland vefsvæðinu geta einstaklingar hvaðanæva að deilt sögum sínum um Ísland og sett inn myndir og myndbönd tengd þeim. Heimsþekktir listamenn segja þar einnig frá kynnum sínum af landinu og áhrif þess á þá. Á síðunni geta notendur að auki fundið ýmsar upplýsingar tengdar ferðalögum til Íslands m.a. gistingu, menningu og listum og mat.

TM Software vann efni vefjarins í VYRE Unify vefumsjónarkerfi þar sem miklar kröfur voru gerðar til sveigjanleika og skalanleika. Kerfið er mjög öflugt til að halda utan um mikið af gögnum, líftíma gagna, útgáfustjórn og flókin tengsl milli ólíkra efnisflokka og hentar því fullkomlega fyrir vefsvæði eins og Inspired by Iceland.

Ráðstefnuskrifstofa Íslands (RSÍ) veitti ICCA verðlaununum viðtöku á Indlandi. Verðlaunin voru veitt fyrir viðbrögð aðildarfélaga RSÍ vegna fyrirsjáanlegra fækkunar ferðamanna af völdum eldgossins í Eyjafjallajökli. RSÍ samanstendur af 30 fyrirtækjum sem sérhæfa sig í mótttöku ráðstefnu-, funda- og hvataferðagesta.

ICCA eru stærstu alþjóðlegu samtök aðila á ráðstefnu og hvataferðamarkaðinum.