Bæði Ríkisútvarpið og Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hafa tekið í notkun VYRE 4 vefumsjónarkerfið. Hjá RÚV var eldri útgáfa VYRE í notkun áður og eins hjá Straumi fjárfestingabanka fyrir sameininguna við Burðarás.
Á síðasta ári gerði TM Software þróunar- og samstarfssamning við Offstump Ltd í Englandi, eiganda VYRE, og tók í framhaldinu við umboði VYRE 4 vefumsjónarkerfisins og þjónustu við notendur hérlendis. VYRE 4 er önnur kynslóð vefumsjónarkerfisins og hefur það verið endurbyggt frá grunni með áherslu á nýjustu þróunaraðferðir og tækni. Vefumsjónarkerfið er byggt á Java J2EE og getur því keyrt á mörgum mismunandi stýrikerfum. Það notar XML fyrir auðveldan flutning gagna og XSL fyrir umbreyt¬ingu á gögnum og er því um aðskilnað á efni og útliti að ræða.
Að sögn Hugrúnar Hrannar Kristjánsdóttur, vefstjóra RÚV, var eldri útgáfa vefumsjónarkerfisins í notkun hjá stofnuninni. Hún segir að margt hafi verið í boði þegar farið var að svipast um eftir nýju og nútímalegra kerfi en að vandlega athuguðu máli hafi niðurstaðan orðið sú að VYRE 4 væri besti kosturinn.
Hjá Straumi-Burðarási var ákveðið að halda áfram með VYRE-vefumsjónarkerfi eftir sameiningu fyrirtækjanna sl. sumar. Að sögn starfsmanna félagsins þykir hin nýja útgáfa kerfisins mjög góð og ítarleg. Kerfið sé annars vegar forritunarumhverfi og hins vegar fyrir fólk til að setja inn fréttir og annað efni. Til þess þurfi enga forritunarkunnáttu, sem sé mikill kostur. Kerfið er m.a. beintengt við Kauphöllina og koma svokallaðir „tickerar” eða borðar sjálfvirkt inn á vefsíðu fjárfestingabankans. Starfsmenn Straums-Burðaráss segja að það sé skemmtilegt að vinna í VYRE, það sé einfalt, gott að vinna við það og augljóst hvað sé verið að gera.
