23.11.
10
Ofurhetjudögum TM Software er nýlokið en þeir ganga út á það að starfsmenn vinna í hópum að spennandi nýjungum í 24 tíma.
Tilgangur Ofurhetjudagana er að hrista mannskapinn saman í upphafi vetrar, töfra fram skemmtileg verkefni, skapa nýtt stöff og læra eitthvað nýtt, en umfram allt að hafa gaman að því sem við gerum best.
Í þetta sinn urðu til 5 sjálfskipaðir hópar sem unnu að mjög spennandi nýjungum sem mörg eru á sviði farsímalausna. Þessir verkefni eru eftirfarandi:
- PhoneMaster - Farsíma-kerfi fyrir bakenda netverslun í WebMaster vefumsjónarkerfisins
- TempoTouch - Farsíma-viðmót fyrir Tempo plug-in sem við þróum fyrir JIRA verkefnastjórnunarkerfinu
- TinyTask fyrir JIRA - Einfalt og þægilegt kerfi til að halda utan um verkefnalista í JIRA verkefnastjórnunarkerfinu
- Mobile Verslun - Vefverslunarkerfi fyrir farsíma
- Inni-Úti farsímalausn - Viðveruskráning í Inn-Úti kerfinu í farsíma.
Dómnefnd var skipuð fjórum aðilum sem áttu gríðarlega erfitt með að gera upp á milli verkefnanna. Sigurvegarar voru Kristín, Hildur, Helga, Viðar og Jón Egill með TempoTouch verkefnið.
Verðlaunin voru afhent af Frímanni Gunnarssyni, heimsfrægasta Íslendingnum um þessar mundir, en hann tók einnig þátt í störfum dómnefndar. Einnig voru við svo heppin að njóta fyrirlestrar Frímans um upplýsingatækni og fleira sem hann fæst við þessa dagana.
















