04.12. 06

Í desember héldu TM Software og ContentXXL International sameiginlega notendaráðstefnu fyrir notendur vefumsjónarkerfisins ContentXXL. Ráðstefnan var haldin í höfuðstöðvum TM Software í Holtasmára við góðar undirtektir en félagið er einkasöluaðili kerfisins á Íslandi.

Fulltrúar ContentXXL International frá Þýskalandi Michael Nutz, sölu- og samstarfsaðilastjóri og Frank Daske, vöru- og þróunarstjóri, kynntu notendum kerfisins sögu þess, verkefni sem þeir hafa komið að, nýjustu uppfærslur og framtíð kerfisins. Ásamt því fóru þeir inn á tengsl ContentXXL við Microsoft og hvernig stefnt er á að samstarf þeirra við Microsoft verði enn nánara. Mikil þróun hefur átt sér stað hjá Microsoft í kerfum á borð við Atlas, InfoPath or Sharepoint og er ætlunin að ContentXXL nýti hana og styðji enn betur við þessi kerfi á næstunni. 
Eftir kynninguna svöruðu Michael og Frank ýmsum spurningum er sneru að kerfinu auk þess komu sem Hreinn Eggertsson og Höskuldur Sigurðarson, sem sátu ráðstefnuna fyrir hönd TM Software, komu einnig með góðar athugasemdir.