06.10.
08
Stjórn Nýherja hf. hefur ákveðið að innleiða nýtt viðskiptamódel og skipulag fyrir félagið en Nýherji keypti TM Software fyrr á árinu. Markmið með breytingunum er að skerpa áherslur með sérhæfingu dótturfélaga á einstökum sérsviðum ásamt því að samhæfa og auka hagkvæmni í rekstri félagsins.
Helstu breytingar felast í eftirfarandi:
- Nýherji hf. verður móðurfélag sex megin dótturfélaga. Einnig verður sala og vörustjórnun á tölvu og tæknibúnaði hjá Nýherja hf.
- Hvert dótturfélag sérhæfir sig á afmörkuðu sviði þjónustu, hugbúnaðar eða ráðgjafar með það að markmiði að mæta þörfum viðskiptavina á því sérsviði.
- Dótturfélögin verða:
- Skyggnir ehf. sérhæft á sviði bestunar UT kerfa, samþættingu samskiptalausna og rekstrarþjónustu.
- TM Software ehf. með áherslu á viðameiri hugbúnaðarþróun og samþættingu kerfa.
- Sense ehf. fyrir stafrænar lausnir, svo sem fyrir hljóð- og myndbúnað.
- Applicon ehf. með áherslu á viðskiptahugbúnað, fjármálalausnir og sérhæfðar atvinnugreinalausnir.
- Nýtt félag verður stofnað um alla sameiginlega stoðþjónustu fyrir samstæðuna, en það mun í framtíðinni einnig bjóða slíka þjónustu til annarra viðskiptavina.
- ParX ehf. sem mun áfram verða sérhæft á sviði vandaðrar viðskiptaráðgjafar.
- Starfsemin mun að verulegum hluta flytjast að Urðarhvarfi 6 í Kópavogi, þar sem TM Software er nú til húsa, en félagið verður einnig með starfsemi í húsnæði Nýherja að Borgartúni 37.
- Nýtt viðskiptamódel Nýherja samstæðunnar verður komið til framkvæmda í nóvember.
Meginverkefni starfsmanna Nýherja og dótturfélaga felst í því að vinna náið með viðskiptavinum sínum við það að ná fram auknum sveigjanleika lækkun kostnaðar eða öðrum ávinningi í þeirra rekstri. Með breytingunum verður skerpt frekar á þessum áherslum og tryggt að starfsfólk geti náð hámarks árangri í samvinnu við sína viðskiptavini.
Starfsfólk Nýherja á Íslandi er um 550 og munu um 500 starfa hjá dótturfélögum, en um 50 í móðurfélaginu. Starfsmenn erlendis eru um 180 og starfa því alls um 730 manns hjá Nýherja og dótturfélögum.
Fréttatilkynninguna í heild sinni má sjá hér.

