Þann 26. september sl. efndi TM Software til ráðstefnu um ýmsar sparnaðarleiðir í rekstri tölvukerfa. Ráðstefnan bar heitið Hagræðing í upplýsingatækni en hjá TM Software starfa um 230 starfsmenn sem hafa áralanga reynslu við að hagræða í rekstri tölvukerfa og eru sífellt að leita leiða til að nota upplýsingatækni til að lækka rekstrarkostnað fyrirtækja.
Kynntar voru þær vörur og þjónusta sem TM Software býður upp á sem leitt geta til umtalsverðrar hagræðingar við rekstur og þjónustu í upplýsingatækni fyrirtækja og stofnana og sú aðferðafræði sem TM Software hefur tileinkað sér við að ná slíkum markmiðum fyrir sína viðskiptavini.
Þrír viðskiptavinir TM Software; Óskar J. Sandholt, framkvæmdastjóri fræðslu- og menningarsviðs Seltjarnarnesbæjar, Kristján Þór Hallbjörnsson, forstöðumaður upplýsingatæknisviðs Eimskips og Hjörtur Þorgilsson, upplýsingatæknistjóri Icelandair, deildu reynslusögum af viðskiptum sínum við TM Software og í lokin voru pallborðsumræður þar sem þeir og aðrir fyrirlesarar á ráðstefnunni svöruðu spurningum ráðstefnugesta.
Ráðstefnan var haldin í höfuðstöðvum TM Software að Urðarhvarfi 6 og var þátttaka mjög góð. Almenn ánægja var með fyrirlestrana og almenna nálgun við viðfangsefnið sem er mörgum fyrirtækjum og stofnunum hugleikið í dag. Í lokin var boðið upp á léttar veitingar og ráðstefnugestir gátu um leið spjallað við fyrirlesarana og sérfræðinga TM Software um málefni dagsins.
TM Software
TM Software er framúrskarandi alhliða upplýsingatæknifyrirtæki sem nýtir þekkingu og hæfni starfsmanna til að styrkja starfsemi viðskiptavina. TM Software hefur meira en tveggja áratuga reynslu á markaði og er með sérstöðu í hugbúnaðarþróun, rekstri, ráðgjöf og búnaðarlausnum.

