TM Software tók nýverið þátt í tveggja daga alþjóðlegri Scrum ráðstefnu, Nordic Scrum Forum 2008, sem haldin var í Stokkhólmi. TM Software var einn aðalstyrktaraðili ráðstefnunnar og var með bás á henni þar sem sérfræðingar félagsins í Scrum kynntu hvernig TM Software getur aðstoðað við innleiðingu Scrum verkefnastýringarinnar.
Á ráðstefnunni fóru fulltrúar ýmissa fyrirtækja, s.s. Volvo, Yahoo og Nokia Siemens, yfir reynslusögur sínar og innleiðingu sína á Scrum til að skerpa á vöruþróun, bæta gæði og auka framleiðslu. Auk þess fóru þeir yfir hvernig útfæra megi Scrum hugmyndafræðina yfir á stór jafnt sem smærri fyrirtæki.
Scrum fellur undir agile hugmyndafræðina þar sem hugbúnaðarþróun, vöruþróun, verkefnastjórnun og almenn stjórnun renna saman. Í Scrum hugmyndafræðinni er gengið út frá því sjónarmiði að vinna í hugbúnaðarverkefnum sé vöruþróun en ekki framleiðsla. Þetta sjónarmið gjörbreytir rekstri, verklagi og hugmyndum fólks í hugbúnaðarverkefnum.
Hjá TM Software starfar stór hópur sérfræðinga á sviði agile eða kvikrar hugbúnaðarþróunar og Scrum verkefnastýringar. Þeir hafa aðstoðað fjölmörg fyrirtæki við að gera vöruþróun þeirra virðisaukandi, með því minnka sóun og auka verðmætasköpun.
Smellið hér til að hala niður bækling um Scrum á ensku
TM Software
TM Software er framúrskarandi alhliða upplýsingatæknifyrirtæki sem nýtir þekkingu og hæfni starfsmanna til að styrkja starfsemi viðskiptavina. TM Software hefur meira en tveggja áratuga reynslu á markaði og er með sérstöðu í hugbúnaðarþróun, rekstri, ráðgjöf og búnaðarlausnum.

