Undanfarin ár hefur TM Software boðið viðskiptavinum sínum upp á stjórnun vefumferðar og varnir gegn netlægum óværum með búnaði frá WebSense. Nýverið var samningur við WebSense endurnýjaður og stækkaður og getur TM Software nú boðið fyrirtækjum lausnir og þjónustu WebSense ásamt framúrskarandi ráðgjöf um stillingar og notkun á stjórnun vefumferðar.
Kostir WebSense eru tvíþættir. Í fyrsta lagi geta fyrirtæki stjórnað vefnotkun starfsmanna sinna og komið þannig í veg fyrir tímaeyðslu starfsmanna á afþreyingarvefjum sbr., Facebook og MySpace og takmarka þannig einnig bein gjöld sem geta komið vegna erlends niðurhals. WebSense getur því sparað fyrirtækjum mikla fjármuni og aukið afköst og framleiðni starfsmanna umtalsvert.
Í öðru lagi er WebSense nauðsynleg vörn gegn óværum og njósnahugbúnaði sem býr um sig á Internetinu. Hefðbundnar vírusvarnir ráða ekki við að verja tölvuumhverfi ein og sér þar sem óprúttnir aðilar geta brjótið sér leiðir inn á vinsæl og mikið notuð vefsvæði og laumað þar inn hugbúnaðarkóða sem ætlað er að brjóta á eða veikja varnir tölvukerfa notenda í þeim tilgangi að afla upplýsinga eða fjármuna. WebSense er sú öryggislausn sem veitir hvað öruggasta vörn gegn slíkum árásum og sér um að verja tölvukerfi margra af stærstu fyrirtækjum heims. TM Software býður einnig upp á aðrar WebSense öryggislausnir sem snúa að því að verja gögn og upplýsingar fyrirtækja, hindra dreifingu og afritun gagna þeirra aðila sem hafa ekki til þess fullkomnar heimildir.
Ráðgjafar TM Software veita allar nánari upplýsingar um þjónustu WebSense og hvernig fyrirtæki geta hagrætt, sparað fjármuni og komið í veg fyrir að gögn og verðmætar upplýsingar tapist.

