23.10. 08

Sala á vöru og þjónustu nam rúmlega 3.600 mkr á þriðja ársfjórðungi 2008 hjá samstæðu Nýherja, samanborið við 2.750 mkr á sama tímabili í fyrra. Sala hefur því aukist um 31% frá þriðja ársfjórðungi í fyrra. Tap var á rekstri samstæðunnar sem nemur 262 mkr á þriðja ársfjórðungi.

„Rekstur grunnstarfsemi Nýherja er samkvæmt áætlun í ársfjórðungnum og skilar ágætri afkomu fyrir fyrstu níu mánuðina," segir Þórður Sverrisson forstjóri Nýherja. "Sama gildir um hluta dótturfélaga hérlendis og fyrir hugbúnaðar-starfsemi erlendis. Tekjur erlendra dótturfyrirtækja Nýherja eru nú um 22% af heildartekjum samstæðunnar og eykur það stöðugleika í rekstri félagsins."

Þórður segir að nýtt viðskiptamódel Nýherjasamstæðunnar, sem unnið hafi verið að frá því í vor, hafi verið kynnt í byrjun október og ljúki innleiðingu í nóvember. "Markmið þess er að skerpa þjónustu við viðskiptavini, með sérhæfingu dótturfélaga á einstökum sviðum, ásamt því að auka hagkvæmni í rekstri félagsins."

Þá segir Þórður: "Starfsemi Nýherja er fjölþætt og dreifð, fjárhagsstaða traust og er eiginfjárhlutfall 25,4%, þrátt fyrir gjaldfærslu á 730 mkr. gengistapi á árinu.“

Helstu niðurstöður fyrir níu mánuði ársins 2008


    * Sala á vöru og þjónustu nam 10.729 mkr  og jókst um 38% miðað við sama tímabil í fyrra
    * EBITDA var 393 mkr en 489 mkr árið 2007
    * Eiginfjárhlutfall 25% eftir  730 mkr gengistap
    * Tap á árinu nam 694 mkr samanborið við 302 mkr hagnað á sama tíma í fyrra
    * Innleiðing á nýju viðskiptamódeli að hefjast en það eykur hagkvæmni og sérhæfingu dótturfélaga

Fréttatilkynningin í heild sinni.

Nýherji: árshlutareikningur.