Tempo tímaskráningar- og verkefnaumsjónarkerfið frá TM Software, einu af dótturfélögum Nýherja, er nú selt til 45 landa og eru viðskiptavinir yfir 1.000. Þennan árangur hefur fyrirtækið náð á aðeins tveimur árum. Hugbúnaðurinn er eingöngu seldur í gegnum netið og geta viðskiptavinir valið um setja hugbúnaðinn upp í sínu eigin umhverfi eða keypt aðgang að hugbúnaðinum í gegnum tölvuský.
Meðal viðskiptavina eru fyrirtæki eins og Deutsche bank, Intel og Kauphöllin í London.
Tempo tímaskráningarkerfið er viðbót við verkbeiðna- og þjónustukerfið JIRA frá ástralska hugbúnaðarfyrirtækinu Atlassian og gerir notendum mögulegt að tengja við tímaskráningar og koma í veg fyrir tvískráningar beiðna og reikninga. Kerfið var upphaflega þróað til innanhússnota en ákveðið var að prófa það til sölu í gegnum netið til reynslu. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa.
Hugbúnaðarfyrirtækið TM Software sérhæfir sig í framleiðslu á eigin hugbúnaðarvörum og ráðgjöf og þjónustu á sérhæfðum hugbúnaðarlausnum. Hjá félaginu voru 67 stöðugildi árið 2010. Fyrirtækið er hluti af Nýherja samstæðunni.
25.01.
12

