28.11. 08
Stefán Þór Stefánsson hjá TM Software afhendir Pétri Sigurðssyni verðlaunin

TM Software var aðalstyrktaraðili Iceweb 2008, alþjóðlegrar tveggja daga ráðstefnu um vefmál sem haldin var af SVEF, Samtökum vefiðnaðarins, 13. og 14.nóvember sl. Á ráðstefnunni var settur upp laufléttur spurningarleikur og var starfræn myndavél í verðlaun.

Fjölmargir ráðstefnugestir tóku þátt í spurningarleiknum en svör við spurningunum var hægt að finna í bæklingi um TM Software sem var dreift til allra ráðstefnugesta. Dregið var úr réttum svörum þátttakanda og var sá heppni Pétur Sigurðsson, starfsmaður í netbankadeild Glitnis. Hann fékk Canon Ixus 860 IS stafræna myndavél að verðmæti um 36.000 krónur. Myndavélin er 8.0 megapixla og sameinar yfirburði í ljósmyndun og glæsilega hönnun.