05.12. 08
Laila Sæunn Pétursdóttir hjá TM Software og Margrét Blöndal, skrifstofustjóri hjá ABC barnahjálp takast í hendur við afhendingu húsgagnanna.

Síðla í nóvember gaf TM Software um ýmis húsgögn til ABC barnahjálpar og styrktu þar með starf félagsins. Um var að ræða um 160 fundarstóla, hillur, skrifborð og fleiri húsgögn.  

Ákveðið var að gefa frekar húsgögnin til góðgerðarmála í stað þess að láta þau vera í geymslu árum saman eins og oft á tíðum getur gerst hjá fyrirtækjum. „Okkur fannst nauðsynlegt að finna þessum húsgögnum nýja eigendur og styrkja í leiðinni gott málefni og er ég viss um að húsgögnin muni koma ABC að góðum notum, sagði Laila Sæunn Pétursdóttir hjá TM Software við afhendingu húsgagnanna. Um var að ræða ýmis húsgögn sem höfðu safnast saman eftir flutninga og eftir ýmsar endurbætur hjá fyrirtækinu. „Þetta er alveg frábær gjöf og sérlega höfðinglegt af TM Software og á vissulega eftir að nýtast okkur mikið“ sagði Guðrún Margrét Pálsdóttir eftir afhendingu húsgagnanna.

Starf ABC barnahjálpar snýst um að bæta hag bágstaddra barna. Markmið samtakanna er að veita yfirgefnum og umkomulausum börnum varanlega hjálp í formi menntunar og heimila þar sem þess er þörf og geta húsgögnin nýst félaginu sérlega vel og hentað einnig við fjáröflun félagsins.