22.12. 08
Við afhendingu styrksins. Frá vinstri: Sveinn Sigurður Kjartansson, frá Skyggni, Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, og Stefán Þór Stefánsson, frá TM Software.
Systurfyrirtækin TM Software, eMR og Skyggnir hafa ákveðið að styðja við bakið á starfsemi Krabbameinsfélags Íslands og veita félaginu veglega jólagjöf í formi fjárstyrks að andvirði þeirrar fjárhæðar sem hefur hingað til verið varið í jólagjafir og jólakort til viðskiptavina.

 „Í ár ákváðum við að breyta til og styðja við góðgerðarsamtök ,“ segir Stefán Þór Stefánsson hjá TM Software. „Okkur fannst tilvalið að styðja Krabbameinsfélag Íslands, sem vinnur mjög gott starf sem enginn Íslendingur hefur farið varhluta af og það er ánægjulegt að geta lagt starfi Krabbameinsfélagsins lið á tímum þegar erfitt getur verið að falast eftir styrktarfé hjá atvinnulífinu.“  TM Software, eMR og Skyggnir eru dótturfélög Nýherja og starfa öll á sviði upplýsingatækni.

„Gjöf af þessu tagi skiptir miklu máli fyrir starfsemi Krabbameinsfélags Íslands – og þá að sjálfsögðu Íslendinga allra,“ segir Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands.  „Við erum afar þakklát fyrir þessa jólagjöf, en Krabbameinsfélagið er alfarið rekið fyrir tilstuðlan velviljaðra einstaklinga og fyrirtækja. Við rekum hér fjölbreytta starfsemi, bæði hvað varðar rannsóknir á sviði krabbameins, skipulega leit að krabbameini og ráðgjafarmiðstöð fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra.“