19.01. 07

Icelandair vefurinn www.icelandair.is hlaut viðurkenningarnar „besti íslenski vefurinn“ og „besti fyrritækisvefurinn“ þegar Íslensku vefverðlaunin 2006 voru afhent við hátíðlega athöfn í Iðnó fimmtudaginn 18.janúar. Aðstandendur íslensku vefverðlaunanna eru Samtök vefiðnaðarins (SVEF) og ÍMARK.

TM Software vill nota tækifærið og óska Icelandair innilega til hamingju með viðurkenningarnar sem svo sannarlega eru verðskuldaðar enda hefur fyrirtækið lagt mikla vinnu í að endurbæta vefsvæði sín. TM Software tók þátt í þeirri vinnu og endursmíðaði vefsvæði Icelandair frá grunni í Vyre Unify vefkerfinu frá Vyre Ltd.

Vyre Unify er fullbúið vefkerfi fyrir fyrirtæki sem krefjast þess að veflausnir þeirra séu í takt við auknar kröfur og hraðar breytingar í viðskiptaumhverfi nútímans. TM Software endurhannaði veflausnir fyrir Icelandair með það að markmiði að auka enn frekar sölu og þjónustu á vefnum og mæta vaxandi samkeppni. Meðal annars voru virknieiningar endurskrifaðar fyrir vefsvæðin, virkni aukin og bókunarvélar endurhannaðar ásamt því að viðskiptalag var endurhannað og smíðað ofan á viðskiptamannagrunn Icelandair. Jafnframt sá rekstrarsvið TM Software um að endurnýja og endurhanna hýsingar-og rekstarumhverfi vefsvæðanna. Auk þess sem settur var upp nýr búnaður og höguninni breytt sem skilaði sér í miklu betri og öruggari rekstri kerfisins.

Hér má sjá ítarlegri lýsingu á verkefninu og upplýsingar um Vyre Unify