Búið er að setja upp nýtt vefsvæði hjá TM Software. Nýi vefurinn er á íslensku og er þar miðast við að hafa allar upplýsingar um vörur, lausnir og þjónustu TM Software. Slóðin að vefnum er www.tm-software.is og www.t.is
Í byrjun sumars var ákveðið að setja upp nýjan vef fyrir TM Software þar sem miðast yrði við að birta allar helstu upplýsingar um fyrirtækið, vörur, lausnir og þjónustu þess. Hingað til hefur vefur fyrirtækisins einungis verið framsettur á ensku en nú er hann kominn á íslensku og á næstu mánuðum mun nýja útlitið einnig vera aðlagað að enska hlutanum.
Settur var saman verkefnahópur af öllum sviðum TM Software og fundin lausn á því hvernig best væri að setja vefinn fram með öllum þeim upplýsingum sem þörf væri á. Farið var ítarlega yfir allt efni sem birta ætti og skipulagt hvernig best væri að gera því skil. Auglýsingastofan Mixa var síðan fengin til að hanna nýja útlitið á vefinn í samráði við TM Software.
Markmiðið með nýja vefnum er að gera vörur, lausnir og þjónustu TM Software sýnilegri og upplýsingar um það aðgengilegri fyrir viðskiptavini. Nýi vefurinn er settur upp í vefumsjónarkerfinu VYRE Unify sem nýtist vel fyrir stór vefsvæði og býður upp á marga möguleika varðandi efnisumsjón.
Leitast var eftir að gera síðuna auðvelda í notkun þannig að notendur ættu auðvelt með að finna þær upplýsingar sem þeir leita að. Allt efni er einnig flokkað sérstaklega til að auðvelda leitina á síðunni. Að auki hefur vefgreiningartólið Webtrends verið sett upp til að greina hegðun notenda á vefsíðunni og miðast verður við að uppfæra síðuna með þær niðurstöður að leiðarljósi.
TM Software vonast til að viðskiptavinir þess sem og aðrir gestir vefsins kunni að meta nýja útlitið. Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar en þær má senda í tölvupósti á info@tm-software.is.
