07.02. 07

Vefsvæði Icelandair unnu verðlaunin „best hannaða vefsvæði ársins“ (Best Website Design of the Year) á hinni alþjóðlegu hátíð Technology For Marketing & Advertising (TFM) sem haldin var sjötta febrúar í Grosvenor House hótelinu í London. Það var sér- og veflausnasvið TM Software sem þróaði nýju vefsvæði Icelandair.
 
Kynnir kvöldsins var skemmtikrafturinn Marcus Bridgestock en um 400 notendur, samstarfsaðilar, sérfræðingar, fjölmiðlafólk og birgjar voru á svæðinu. Veitt voru verðlaun í tólf flokkum en Icelandair bar sigur úr bítum í sínum flokki en í honum voru fyrirtækin Orange, Dabs, Odeaon og Xchange Wales. Frekari upplýsingar um verðlaunin og vinningshafanna má finna á TFM vefsíðunni.