Markmið TM Software er að veita nýjum og núverandi viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og stuðla að velgengni þeirra með skýr markmið og áherslu á arðsemi verkefna og að auka skilvirkni viðskiptaferla hjá viðskiptavinum til að bæta samkeppnisstöðu og auka verðmæti.
Gildi okkar: traust, metnaður, sveigjanleiki endurspeglast í því sem við viljum standa fyrir:
Traust
Orðið traust er lykilhugtak í starfsemi TM Software. Við vitum að traust kemur ekki af himnum ofan. Við þurfum að vinna okkur inn traust viðskiptavina og samstarfsfélaga og standa undir því til langframa.
Við erum traustsins verð því:
- Við tökum ábyrgð.
- Við vinnum verk okkar af fagmennsku.
- Við vinnum af heilindum að þeim markmiðum sem sett eru.
- Við treystum samstarfsaðilum okkar og samstarfsmönnum.
Metnaður
Metnaður er í hávegum hafður hjá TM Software en hins vegar er ljóst að til þess að halda honum til streitu þurfa allir hagsmunaraðilar þ.á.m. starfsmenn, viðskiptavinir og hluthafar að vera ánægðir með störf okkar. Árangurinn af störfum okkar skal vera mælanlegur og framúrskarandi.
- Við viljum vera leiðandi á þeim sviðum sem við höslum okkur völl á.
- Við gerum kröfu til okkar sjálfra um:
- Fagleg vinnubrögð.
- Frumkvæði og framsækni.
- Árangur.
- Við höfum metnað:
- Fyrir hönd okkar sjálfra.
- Fyrir hönd þeirra lausna sem við bjóðum.
- Fyrir hönd viðskiptavina okkar.
- Fyrir hönd fyrirtækisins.
Sveigjanleiki
Við vitum að fáar atvinnugreinar eru jafn breytilegar og upplýsingatækni. Því tileinkum við okkur sveigjanleika.
- Við sjáum tækifæri í breytingum.
- Við öflum okkur frekari þekkingar og tileinkum okkur nýjungar.
- Við deilum þekkingu.
- Við vinnum að stöðugum endurbótum
- Við virðum ólíkar skoðanir hvort heldur er um að ræða tækni, ferla eða stjórnun.
- Við lögum okkur að þörfum viðskiptavina okkar.
- Við tryggjum að sveigjanleiki einkenni skipulag og uppbyggingu fyrirtækisins.
