TM Software var stofnað á Íslandi árið 1986 af Friðriki Sigurðssyni sem var forstjóri félagsins til ársins 2006. Í upphafi hét félagið TölvuMyndir en nafninu var formlega breytt í TM Software í byrjun árs 2005. Sýn frumkvöðulsins, Friðriks Sigurðssonar, um að hlutverk upplýsingatækninnar sé að framkvæma fjölbreytt og flókin verkefni hefur verið þýðingarmikil.
Frá upphafi hefur þessi sýn og frumkvöðlakraftur verið starfsfólki TM Software hvatning og grunnurinn að starfsemi félagsins. Vöxtur og þróun TM Software hefur haldið í við hraðskreiðan upplýsingatækniiðnaðinn sem hefur skilgreint hann og mótað.
Í byrjun árs 2008 keypti Nýherji hf. öll hlutabréf í TM Software hf. Framan af því árið starfaði félagið með óbreyttum hætti sem móðurfélag samstæðu dótturfélaganna: Skyggnis ehf, Origo ehf, Vigor ehf, og EMR ehf.
Í nóvember 2008 breytti Nýherji viðskiptamódeli og innra skipulagi Nýherja-samstæðunnar. Skyggnir og Vigor voru skilin frá TM Software, Origo rann inn í TM Software og EMR varð dótturfyrirtæki TM Software ásamt SimDex ehf. sem starfaði áður undir Nýherja. Verkefni og um 20 starfsmenn sem unnu á sviði Microsoft og IBM portal lausna hjá Applicon, Skyggni og Nýherja fluttust til TM Software.
Sögulegt ágrip
- 1986 – TM Software stofnað á Íslandi af Friðriki Sigurðssyni
- 1992 – Sjálfstæðar einingar stofnaðar. Skipting á milli forritunar- og rekstrarþjónustu
- 1996 – Samruni TölvuMynda og Skyggnis kemur fyrirtækinu í núverandi horf sem hugbúnaðarfyrirtæki sem einblínir á ákveðnar atvinnugreinar með þverfaglegri sérfræðiþekkingu
- 1998 – Sameining Almennu Kerfisfræðistofunnar og Forritun í Forritun AKS
- 1999 – Tölvumyndir og Forritun AKS sameinast
- 1999 – Opnun fyrstu alþjóðlegu skrifstofunnar í Kanada
- 2000 – Skyggnir og Maritech verða sjálfstæð dótturfélög
- 2000 – Vigor stofnað sem dótturfélag Tölvumynda
- 2001 – Maritech verður stærsta alþjóðlega hugbúnaðarveitan fyrir sjávarútveg með sameiningu við norskt fyrirtæki
- 2003 – Hugbúnaðarfyrirtæki á heilbrigðissviði, Doc ehf. og eMR ehf., eru tekin yfir
- 2004 – Skyggnir og Maritech verða aftur hluti af TölvuMyndum. Skrifstofur eru opnaðar í Hollandi, Þýskalandi, Chile, Bandaríkjunum, Noregi og Bretlandi
- 2005 – Nafni fyrirtækisins er formlega breytt úr TölvuMyndir í TM Software
- 2006 - Maritech selt til Akva Group
- 2006 - Ágúst Einarsson tekur við forstjórastólnum af Friðriki Sigurðssyni
- 2008 - TM Software selur hluta af heilbrigðislausnasviði sínu
- 2008 - Nýherji kaupir TM Software
- 2008 - Nýherji breytir innra skipulagi og viðskiptamódeli Nýherja-samstæðunnar. Skyggnir ehf. og Vigor ehf. eru skilin frá TM Software sem var áður móðurfélag þessara eininga
- 2008 - TM Software og Origo ehf. eru sameinuð undir nafni TM Software sem verður móðurfélag EMR ehf og SimDex ehf. sem starfaði áður undir Nýherja. Starfsmenn sem unnu á sviði Microsoft og IBM portal lausna hjá Applicon, Skyggni og Nýherja flytjast til TM Software
