Ráðstefnan er haldin af SVEF, Samtökum Vefiðnaðarsins, í tengslum við Íslensku Vefverðlaunin sem fara fram í kjölfar ráðstefnunnar og mun Soffía Kristín Þórðardóttir, ráðgjafi hjá TM Software halda fyrirlestur á henni. 

Gríðarleg tækifæri felast í markaðssókn á Netinu sem mörg íslensk fyrirtæki nýta sér nú með góðum árangri. Að mörgu er að huga til að fjárfestingin nýtist sem best og munu nokkrir nokkrir af helstu sérfræðingum landsins fara yfir helstu atriði sem þarf að hafa í huga og þau tækifæri sem í boði eru.

Aðgangur er ókeypis fyrir félagsmenn SVEF en árgjald í Svef kostar einungis 2000 krónur.

Dagskrá ráðstefnunnar:

  • 13.00 : Formaður SVEF opnar
  • 13.10 : Keynote: Staðan í netmarkaðssetningu á Íslandi í dag
    • Kristján Már Hauksson, Nordic eMarketing 
  • 13.40 : Undirbúningur, Markmiðasetning og val á miðlum
    • Bárður Örn Gunnarsson, Ratsjá 
  • 14.10 : Auglýsingarborðar sem vekja eftirtekt og virka
    • Lee Roy Tipton, Hvíta húsið 
  • 14.40 : Hlé 
  • 15.00 : Samfélagsmiðlar sem markaðstæki
    • Finnur Pálmi Magnússon, Sauma 
  • 15.30 : Google Adwords á Íslandi, óplægður akur?
    • Kjartan Sverrisson, Icelandair 
  • 16.00 : Er bannerinn að borga sig? Hvernig mæla á árangur auglýsinga á netinu
    • Soffía Kristín Þórðardóttir, TM Software 
  • 16.30 : Dagskrá lýkur

TM Software er styrktaraðili SVEF.

Dagsetning viðburðar: 12.02.10

Tímasetning: Klukkan 13:00-16:30

Staðsetning: Hugmyndahús Háskólanna að Grandagarði

Skráning: Skráning fer fram á vefsíðu SVEF

Heimasíða: http://svef.wufoo.com/forms/markaassetning-fra-a-a/