Verkefni

Tímasparnaður - lægri kostnaður - betri þjónusta

Viðskiptavefurinn hefur bæði sparað Intrum mikinn tíma og mikla fjármuni með því að veita viðskiptavinum þeirra góða og skilvirka upplýsingaþjónustu, hvenær sem þeim hentar.

 

Markmið verkefnisins:

  • Að veita kröfuhöfum, stórum sem smáum, framúrskarandi þjónustu með öflugum upplýsingavef
  • Að draga fram gögn úr ólíkum upplýsingakerfum og setja fram á skýran og einfaldan máta
  • Að veita upplýsingar í rauntíma um stöðu innheimtumála sem og allra uppgjöra
  • Að kröfuhafar geti sjálfir framkvæmt ákveðnar aðgerðir í innheimtuferlinu
  • Að búa til viðamikið greiningartól sem sýnir m.a. árangur í innheimtuferlinu
  • Að hanna öfluga leit í sögulegum gögnum
  • Að Intrum verði í fararbroddi í þjónustu við viðskiptavini sína
  • Að spara tíma og kostnað við upplýsingagjöf vegna innheimtukrafna og uppgjöra

 

Ávinningur:

  • Mikill tímasparnaður í upplýsingagjöf til viðskiptavina Intrum
  • Sparnaður í mannahaldi
  • Ánægðari viðskiptavinir
  • Betri og skilvirkari innheimta skulda fyrir viðskiptavini
 

Viðskiptavefur www.intrum.is hefur reynst mikilvægt tæki til að ná þessum markmiðum. Hann gefur viðskiptavinum skýra mynd af stöðu innheimtumála. Markmiðið með vefnum er að auðvelda kröfuhöfum að fylgjast með gangi mála í innheimtu, meta heildarstöðuna og stöðu einstakra mála hverju sinni. Vefurinn veitir viðskiptavinum Intrum m.a:

  • Yfirlit yfir allar innheimtukröfur og stöður þeirra; hægt að áætla mögulegt greiðsluflæði út frá innheimtuhlutfalli og stöðu mála
  • Ítarlegar upplýsingar um innheimtumál hvers skuldara
  • Upplýsingar um heildarstöðu kröfuhafa, samanlagða upphæð og hreina eign kröfuhafa
  • Upplýsingar um stöðu mála í innheimtuferlinu, fjölda og upphæðir
  • Öfluga vefleit sem kallar fram einstök mál eða heildaryfirlit
  • Möguleika á að afmarka tímabil sem auðveldar skoðun á  þróun innheimtumála á hverjum tíma
  • Ítarlegar upplýsingar um uppgjör kröfuhafa við Intrum sem og Lögheimtuna hf.
  • Aldursgreiningu krafna
  • Árangursskýrslur

Samstarf fagmanna skilar ánægðum viðskiptavinum

Viðskiptavefur Intrum er gott dæmi um samstarf fagmanna á ólíkum sviðum. Sérfræðingar í innheimtumálum hjá Intrum hafa unnið náið með sérfræðingum TM Software í vefmálum og samþættingu ólíkra upplýsingakerfa hjá. Samstarfið skilaði af sér glæsilegum upplýsinga- og aðgerðavef sem viðskiptavinir Intrum njóta góðs af á hverjum degi.

Umferð um Viðskiptavefinn hefur vaxið jafnt og þétt frá opnun hans fyrir nokkrum árum. Vefurinn gjörbreytti upplýsingagjöf fyrir viðskiptavini Intrum, jafnt stórum sem smáum. Eins hefur orðið mikil breyting til batnaðar hjá starfsfólki Intrum sem nú getur skoðað öll innheimtumál ákveðinna viðskiptavina á einum stað, í stað þess að sækja upplýsingar í mörg upplýsingakerfi eins og áður var.

 

Vitnisburður

Hrafnkell Sigtryggson, sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Intrum á Íslandi

"Áður fór mikill mannafli og tími hjá okkur í að veita upplýsingar í gegnum síma um stöðu krafna. Núna nálgast viðskiptavinir okkar allar þessar upplýsingar á vefnum, sundurgreindar og í rauntíma. Þarna liggur mikill sparnaður. Markmiðið með þessum umbótum er umfram allt betri upplýsingar fyrir kúnnann og  að þeir starfsmenn viðskiptavina okkar sem hafa með innheimtumál að gera geti fengið allar upplýsingar um stöðu krafna milliliðalaust, en starfsfólk  Intrum fær ósjaldan hrós frá viðskiptavinum sínum um það hversu ítarlega þjónustu Viðskiptavefurinn veitir."