Verkefni

Undirbúningur verkefnisins hófst 1998 hjá TR og var mjög umfangsmikill en öll helstu fyrirtæki landsins á sviði hugbúnaðargerðar kepptust um að hreppa verkefnið. TM Software var eitt fjögurra fyrirtækja sem var boðið að gera tilboð í verkefnið að loknu forvali Ríkiskaupa. Var TM Software valið úr þessum hópi á grundvelli faglegrar þekkingar, tillögu að úrlausn og verðtilboðs. Fékk fyrirtækið hæstu einkunn hjá útboðsnefndinni fyrir alla þætti tilboðsins.

Friðrik Sigurðsson, forstjóri TM Software, sagði þá að það væri mikil áskorun og heiður fyrir fyrirtæki eins og TM Software að fá tækifæri til þess að takast á við verkefni eins og smíði Ölmu. „Það hafði lengi verið draumur forráðamanna fyrirtækisins að fá tækifæri til að smíða nýtt kerfi fyrir TR enda ljóst að smíði kerfisins yrði eitt stærsta og metnaðarfyllsta hugbúnaðarverkefni sem unnið hefur verið á Íslandi um árabil.“

Skráðir viðskiptavinir í Ölmu eru um 150.000. Á hverjum tíma geta allt að 100 starfsmenn TR og umboðsmanna stofnunarinnar um land allt unnið í kerfinu samtímis. Að jafnaði eru um 1.100 umsóknir skráðar í kerfið á mánuði. Í árlegum uppgjörum eru sóttar upplýsingar til Ríkisskattstjóra um tekjur u.þ.b. 50.000 einstaklinga sem fá tekjutengdar greiðslur og launagreiðslur þeirra frá TR stemmdar af miðað við skattframtöl.

Alma sækir upplýsingar til fjölda annarra kerfa til að geta sinnt upplýsingaskyldu og eftirlitshlutverki sínu. Þessi kerfi eru bæði innan TR og utan. Sem dæmi um tengingar við ytri kerfi má nefna ökutækjaskrá, þjóðskrá og kerfi Ríkisskattstjóra. Sem dæmi um tengingar við innri kerfi TR má nefna kerfi fæðingarorlofssjóðs, kerfi læknadeildar og legukerfi. Einnig eru sendar upplýsingar til Ríkisútvarpsins og Símans vegna afsláttarkjara lífeyrisþega.

Allt að 50 manns störfuðu að smíði kerfisins – starfsmenn TM Software, starfsfólk TR, verktakar og ýmsir aðilar sem starfa í öðrum stofnunum og fyrirtækjum, t.d. Ríkisskattstjóra, Innheimtustofnum sveitarfélaga og Ríkisútvarpinu. Fullyrða má að á bak við kerfið liggi í dag (2009) yfir 150.000 vinnustundir eða um 100 mannár.

Vitnisburður

Hermann Ólason, upplýsingatæknistjóri Tryggingastofnunar ríkisins

"TM Software hefur síðastliðin ár unnið með starfsfólki Tryggingastofnunar ríkisins að þróun greiðslukerfis lífeyristrygginga, Ölmu, sem er eitt af meginkerfum TR. Við höfum verið mjög ánægð með verkferla og gæðaeftirlit sem TM Software hefur notað við þróun kerfisins og getum óhikað mælt með þeim sem samstarfsaðila við framkvæmd stórra og krefjandi hugbúnaðarverkefna."