Verkefni
Icelandair minnkaði kostnað við vefumsjón um 50% með nýrri virkni í viðhaldskerfi VYRE UNIFY
Áskorunin: Aukin hagkvæmni í notkun og umsjón Icelandair vefsvæðisins
Netsala er lífæð flugfélaga og þegar viðskiptavinirnir eru vel á aðra milljón er nauðsynlegt að sinna þeim hratt og vel í gegnum netið. Icelandair stóð frammi fyrir nokkrum vandamálum í tengslum við vefsvæði fyrirtækisins, einkum hvað varðaði háþróaða en þunglamalega bókunarvél og hinar fjölmörgu erlendu útgáfur vefsvæðisins.
Markmið verkefnsisins:
- Öll skipan vefsins einfölduð
- Umsýsla gerð auðveldari
- Aukin markaðsvirkni
- Þýðingarvinna auðvelduð
- Háþróað og nútímalegt útlit
Ávinningur:
- Vinnustundum við viðhald vefsins fækkað um helming
- Meiri sala
- Þægilegra notendaviðmót
- Auðveldari og þægilegri umsýsla
Vandamálin
- Viðskiptavinir þurftu að framkvæma of margar aðgerðir við að bóka flug og leita sér upplýsinga á vefsvæðinu
- Kostnaður við umsjón og viðhald vefsins var of hár
- Keppinautar veittu hraðari þjónustu
- Virkni vefsins var ekki í samræmi við eftirspurn og hamlaði því söluaukningu
- Mjög tímafrekt var að skipta um efni á vefsvæðinu
Lausnin: Selero-verkefnið - endurhönnun bakenda í VYRE Unify
Sérfræðingar TM Software settu sér það takmark að gera alla notkun vefsins auðveldari og skilvirkari fyrir bæði viðskiptavini Icelandair og starfsfólk fyrirtækisins sem og að fækka til muna vinnustundum sem fóru í viðhald vefsins og dagleg störf við hann. Allir helstu vinnuferlar í kringum viðhald og umsýslu vefsins voru skráðir og tími mældur fyrir hvert skref. Í lok verkefnisins voru þessir ferlar listaðir aftur með hliðsjón af ávinningi og sparnaði.
Lausnin fólst í vefhagræðingarverkefni sem fékk heitið Selero. Það var byggt ofan á VYRE Unify 4.3. vefumsjónarkerfið. Kjarninn í umbótunum var eitt miðlægt veftré og strengir til hliðar- og undirvefja, öflugt þýðingarferli og stórbættir vinnuferlar.
Úrbætur
Áður var Icelandair í raun með eitt vefsvæði fyrir hvert og eitt af sínum 14 lénum. Með einu miðlægu veftré varð mögulegt að vinna með öll vefsvæði Icelandair í einu og nota strengi til að breyta tungumálastillingum sem fylgdu hverri vefslóð.
Áður hafði bókunarvél Icelandair vefsvæðisins verið dreifð á öll lén Icelandair og var í allt að 100 mismunandi útfærslum. Þetta kostaði töluverða vinnu þar sem það þurfti að fara á hverja einustu síðu á hverju léni sem innihélt bókunarvél til að gera breytingar á stillingum. Nú eru allar stýringar og stillingar á miðlægu viðhaldssvæði. Þetta lækkar kostnað við umsýslu vefsins þar sem hægt er að gera breytingar með færri handtökum.
Þessi allsherjarstilling á öllum virkniseiningum bókunarvélarinnar nær að auki yfir aðra virkni á vefsvæðinu og gerir alla umsýslu miklu hraðari, þægilegri og ódýrari.
Icelandair starfar í mörgum löndum þar sem mismunandi tungumál eru töluð. Því er uppfærsla efnis á hverju svæði fyrir sig lykilatriði. Þýðingar á öll viðkomandi tungumál, auglýsingauppfærsla og önnur regluleg efnisuppfærsla eru mjög mikilvægir þættir í rekstri vefsins. Áður hafði fólkið sem helst sinnti þýðingarþráðunum ekki aðgang að stjórnsvæðinu og átti því ekki kost á að ritstýra þráðunum. Því var það í höndum sérfræðinga TM Software að bæta við þýddu efni inn í vefumsjónarkerfið þar sem kerfinu var um megn að birta þýðingarþræði öðruvísi en í gegnum bakendakerfið.
Starfsmönnum Icelandair er nú gert kleift að birta þýðingarþræði utan bakendakerfisins en takmarka um leið aðgang notanda við sérstaka hluta vefsvæðisins. Þetta eykur mjög hagkvæmni við gerð nýrra þýðingarþráða og uppfærslu þeirra sem fyrir voru. Þar að auki getur starfsfólk Icelandair haft umsjón með öllum þýðingum á vefjum sínum og sett allt efni í vinnuferli þar sem þýðing á efni er hluti af því ferli, þar á meðal er hægt að veita þriðja aðila aðgang að kerfinu til að koma þýðingu á sinn stað.
Margvíslegur ávinningur
Með einu miðlægu veftré verða allar breytingar á hverju svæði fyrir sig hraðari í framkvæmd og uppfærslu. Áður tóku þær alltof langan tíma því það þurfti að endurtaka hverja og eina breytingu 14 sinnum, einu sinni fyrir hvert svæði.
Við þessar breytingar hefur hagkvæmni við uppfærslu bókunarvélarinnar aukist um 78% og 21% við uppfærslu annarra virkniseininga. Þetta þýðir 50% lækkun á kostnaði við vefumsjónina. Með öðrum orðum: Það tekur helmingi færri vinnustundir að uppfæra vefinn.
Þessi mikla hagræðing veldur því að aukinn tími gefst til að sinna öðrum þáttum en uppfærslu vefsins t.d. að bæta útlit og efnisval hans. Ný högun; innra skipulag efnis, gerir Icelandair einnig kleift að mæta eftirspurn hraðar og auka sölu. Auðvelt er fyrir Icelandair að endurnýta allar upplýsingar og virkni á smávef sínum, http://m.icelandair.is.
Allir hagnast á þessum breytingum.Starfsfólk Icelandair í daglegum verkefnum sínum í gegnum vefinn og umsjón hans svo ogl viðskiptavinir Icelandair sem eiga nú auðveldara með að bóka flug og nálgast þær upplýsingar sem þeir óska.
Vitnisburður
Guðmundur Óskarsson, forstöðumaður markaðs- og viðskiptaþróunar Icelandair
“Við vildum að nýtt vefsvæði okkar endurspeglaði sem allra best nýja ímynd Icelandair og aukna áherslu okkar á þjónustuþætti á vefnum en vefsvæðið er meginkerfi í tekjuöflun og þjónustu okkar. Með nýju viðmóti vefsins og tilkomu nýjunga í virkni viðhaldskerfisins hefur vinnustundum við viðhald Icelandair vefsins fækkað um helming. Nú nýtist tími okkar betur í að vinna að efni og markaðssetningu vefsvæðisins. Það að SVEF, Samtök vefiðnaðarins, skyldu velja vefsvæðið Besta sölu- og þjónustuvefinn 2008 segir okkur að við erum á réttri braut.”
