Verkefni

Síminn rekur eitt af framsæknustu vefsvæðum á landinu í vefumsjónarkerfinu VYRE Unify og í janúar 2009 hlaut Síminn Íslensku vefverðlaunin sem Besti íslenski vefurinn 2008 og fyrir Besta útlit og viðmót 2008. Þetta er sannarlega glæsilegur árangur hjá Símanum sem hefur undanfarin ár unnið markvisst að því að vera í hópi bestu vefja landsins. 

TM Software hefur um árabil veitt alhliða ráðgjöf og þjónustu m.a. um sérþróun á Java lausnum fyrir bæði innri og ytri vefi Símans. 

Árið 2005 vann TM Software náið með Símanum að uppsetningu vefsvæða Símans í VYRE Unify vefumsjónarkerfinu. Frá þeim tíma hefur TM Software þróað hátt í eitt hundrað JSR 168 Portlets fyrir Símann en slíkar einingar eru staðlaðar Portal einingar sem byggja á opnum stöðlum á borð við JSR 168 og Spring. 

Meðal verkefna fyrir Símann eru: 

  • Tugir Portletta fyrir Siminn.is og Innrivef Símans 
  • Vefviðmót fyrir starfsmannaleit á móti SAP
  • Facebook virkni á Innrivef
  • Tengingar og samkeyrsla við LDAP aðgangsgrunn starfsmanna
  • Uppflettingar bókhaldslykla á innraneti
  • Númeraleit fyrir Frelsi og áfyllingar á Frelsi 
  • Þjónustuvefur fyrir endursöluaðila Símans