Verkefni

Vefurinn www.ruv.is er einn af stærstu upplýsingavefum á Íslandi og hefur hann verið vistaður í vefumsjónarkerfinu VYRE frá árinu 2000. 

Árið 2006 stýrði TM Software stóru uppfærsluverkefni á www.ruv.is í nýja útgáfu VYRE kerfisins, VYRE Unify. Frá þeim tíma hefur TM Software veitt alhliða ráðgjöf og þjónustu verðandi rekstur á frétta- og upplýsingamiðli Ríkisútvarpsins.

Sumarið 2008 annaðist TM Software vef- og viðmótsforritun vegna nýs útlits fyrir aðalvef og fréttavef www.ruv.is.