Verkefni

Alþýðusamband Íslands er stærsta fjöldahreyfing launafólks í landinu. Um tveir þriðju hlutar launamanna í skipulögðum samtökum á Íslandi eru í ASÍ og því mikilvægt að allir hafi greiðan aðgang að þeim upplýsingum sem hægt er að birta á vefnum. Farið var í gegnum ítarlega greiningu á þörfum notenda síðunnar og skoðað hvaða upplýsinga væri þörf.

Aðgengi í fyrirrúmi
Vefurinn er vistaður í vefumsjónarkerfinu ContentXXL, sem er Microsoft-lausn frá ContentXXL International. TM Software þróaði sérhannað viðmót fyrir vef ASÍ, sem greiðir fyrir aðgangi sjóndapurra og lesblindra.

Þannig er hægt að breyta litnum á letrinu, sérhljóðunum og bakgrunninum. Einnig er hægt að breyta leturgerðinni og leturstærðinni, auk þess sem hægt er að auka og minnka stafabil, orðabil og línubil textans á síðunni.

ASÍ-vefsvæðið er fyrsti vefur TM Software sem nýtir sér þessa lausn en hana er hægt að yfirfæra á hvaða vefsvæði sem er óháð undirliggjandi veflausn.

Allar upplýsingar til staðar
Allar upplýsingar um ASÍ eru birtar á vefsíðunni og má þar telja fréttir, upplýsingar um vinnuréttindi og almennar upplýsingar um efnahags- og atvinnumál svo eitthvað sé nefnt. Einnig er þar að finna  fræðslumola um ýmislegt sem snýr að launamálum og vinnumarkaði.