Verkefni

Í árslok 2007 opnaði ÁTVR nýtt vefsvæði, www.vinbud.is sem TM Software sá um gerð og uppsetningu á. Vefsvæðið er sett upp í vefumsjónarkerfinu ContentXXL og er ætlað að veita viðskiptavinum ÁTVR enn betri upplýsingar og þjónustu ásamt því að gera allt vefverslunarferli einfaldara í sniðum.

Samkvæmt Hreini Eggertssyni, verkefnastjóra hjá TM Software, er þetta fyrsta skrefið í átt að endurbættu vefsvæði en enn fleiri nýjungar eiga eftir að bætast við á næstunni. Meginmarkmið er að gera vefsvæðið einfalt og þægilegt í notkun fyrir viðskiptavini og starfsfólk ÁTVR.

„Í þessu fyrsta skrefi erum við búin að koma á tengingu við Microsoft Navision Dynamics kerfi ÁTVR. Allar upplýsingar í vörulistum á vefsvæðinu koma þaðan. Allar breytingar á vörum eins og verð, framboð o.fl. eru gerðar í Navision. Rauntímatenging milli vefs og Navision tryggir að nýjustu upplýsingar um vörur eru alltaf á vefnum“.

Ekki er einungis hægt að tengja Microsoft Navision Dynamics kerfi við ContentXXL heldur öll bókhaldskerfi. Viðskiptavinir ÁTVR geta nú flett í gegnum flestar vörutegundir sem ÁTVR býður upp á og flokkað þær á ýmsan máta. Sérstök hjálparleit, ein sú fyrsta sinnar tegundar í vefverslun, hjálpar notendum að flokka t.d. léttvín eftir því hvar í heiminum þau eru framleidd og með hvers konar mat þau henta. Þessi hjálparleit er mjög gagnvirk og breytir leitarniðurstöðum án þess að vefsíðan þurfi að hlaðast inn að nýju við hverja breytingu.

Á vefsvæðinu er einnig að finna hefðbundnar upplýsingar sem er viðhaldið í vefumsjónarkerfinu eins og staðsetningu og afgreiðslutíma vínbúða. Vefsvæðið hefur einnig að geyma ýmsan fróðleik varðandi mat og vín, Vínblaðið, álit frá vínráðgjöfum, framleiðslu og meðhöndlun vína, forvarnarupplýsingar og margt fleira. Vefsvæðið er afar lifandi og er markmið ÁTVR að hafa alltaf nýtt efni fyrir viðskiptavini.


Næstu skref í þróun vefsvæðisins verður að setja upp netverslun, bæta leitarvirkni og halda áfram almennri þróun vefsins. Fyrir birgja verður svo sett upp sér vefsvæði þar sem þeir geta nálgast sölutölur o.fl. sem tengjast einnig beint við Navision bókhaldskerfið.

Vitnisburður

Jóna Grétarsdóttir, markaðsstjóri hjá ÁTVR:

„Vinnan með TM Software hefur gengið mjög vel og sérfræðingar fyrirtækisins hafa þjónað okkur vel. Við erum mjög ánægð með útkomuna og erum sannfærð um að viðskiptavinir okkar verði það líka. Markmið okkar er að halda áfram á þessari braut og gera www.vinbud.is að einum flottasta vef landsins.“