Verkefni

Íslandsbanki hefur löngum vakið athygli fyrir góða framsetingu á upplýsingum og þjónustu á netinu hvort sem er á hefbundu vefsíðunni eða netbankanum.
 
Árið 2007 uppskar vefur bankans sem þá hét Glitnir.is Íslensku vefverðlaunin 2007 sem Besti fyrirtækjavefurinn.  
 
TM Software hefur átt farsælt samstarf með Íslandsbanka og fyrrum Glitni á sviði vefmála undanfarin tvö ár. Árið 2007 hófu Glitnir og TM Software samvinnu um innleiðingu á VYRE Unify vefumsjónarkerfinu fyrir Glitni.
 
Verkefnið hófst með uppsetningu og smíði á Markaðsbrunni fyrir Glitnir Bank sem hýsti vörumerki bankans í öllum útgáfum ásamt alþjóðlegu markaðsefni bankans sem nýtt var í markaðsherferðum jafnt utanlands sem innan. Markaðsbrunnurinn nýtti sér staðlaða virkni í VYRE vefumsjónarkerfinu sem meðal annars felst í vel skilgreindu skjalakerfi með stuðningi fyrir lýsigöng, taxonomy flokkun og formatbreytingar, vatnsmerkingar og aðgangsstýringar á skjölum eftir þörfum. 
 
Í framhaldinu hófst uppsetning á vefsvæðum fyrir glitnir.co.uk, glitnirbank.com yfir í VYRE Unify og fljótlega á eftir fylgdi svo Glitnir.is og fleiri vefir bankans s.s. glitnir.lu, saveandsave.com og Innrivefur bankans.
 
Samhliða nafnabreytingum bankans í lok febrúar 2009 skipti vefurinn um útlit og nýtir hann nú svokallað grid skipulag í HTML og CSS kóða vefsíðunnar en slík viðmót njóta sívaxandi vinsælda enda nýta þau það besta sem þekkist úr prentheiminum við að skapa falleg viðmót þar sem texti og grafík eru í góðu jafnvægi. 
 
Einnig notar vefurinn jQuery javascript safnið fyrir dýnamískar viðmótseiningar eins og fyrir villuskimun í eyðublöðum á vefnum ofl. 
 
Nýlega þróuðu sérfræðingar TM Software einfalda reiknivél fyrir Íslandsbankavefinn sem gerir einstaklingum kleyft að fá einfalt stöðumat á helstu tekju og útgjaldaliði heimilisins.