Verkefni
Í tilefni af 10 ára afmæli sínu í mars 2008 opnaði Íslandspóstur nýjan vef á www.postur.is.
Vefsvæðið er unnið af sérfræðingum TM Software í vefumsjónarkerfinu ContentXXL en stjórnendur Íslandspósts fengu áhuga á því eftir ráðstefnu TM Software um kerfið. Eftir forval á nokkrum vefumsjónarkerfum varð ContentXXL og þjónusta TM Software fyrir valinu.
Þróunin á vefsvæðinu hefur gengið mjög hratt og er verkefnið unnið samkvæmt Agile aðferðafræðinni.
„Við erum einstaklega ánægð með verkefnastýringuna hjá TM Software og hversu hratt verkefnið hefur gengið fyrir sig. Við erum mjög ánægð með útkomuna og erum viss um að nýja vefsvæðið muni henta viðskiptavinum okkar sérlega vel,” segir Dögg Matthíasdóttir hjá Íslandspósti.
Með tilkomu nýs vefsvæðis munu viðskiptavinir Íslandspósts sjá auka þjónustur og finna fyrir betra aðgengi. Lögð var áhersla á að gera þjónustu Póstsins betri skil og að lykilþættir hennar séu sýnilegri. Við hönnun vefsvæðisins var einnig hugað að bættu aðgengi þeirra sem styðja sig við skjálesara við vöfrun á netinu.Vitnisburður
Dögg Matthíasdóttir hjá Íslandspósti.
„Við erum einstaklega ánægð með verkefnastýringuna hjá TM Software og hversu hratt verkefnið hefur gengið fyrir sig. Við erum mjög ánægð með útkomuna og erum viss um að nýja vefsvæðið muni henta viðskiptavinum okkar sérlega vel."

