Verkefni

Frá árinu 2005 hafa TM Software og Reykjavíkurborg starfað saman að uppbyggingu á vefsvæði fyrir Reykjavíkurborg. Þá var gengið frá samningi um kaup borgarinnar á ContentXXL-vefumsjónarkerfinu. Það kerfi gerir alla miðlun upplýsinga á ytri og innri vefsvæðum borgarinnar einfaldari og aðgengilegri.

Mikil greiningarvinna fór fram vegna uppbyggingu og ferla á vef Reykjavíkurborgar og sameinar vefurinn öll helstu vefsvæði borgarinnar undir slóðinni www.reykjavik.is.

Markmiðið með vef Reykjavíkurborgar er að bæta miðlun og auðvelda aðgengi að upplýsingum fyrir borgarbúa en vefsvæði borgarinnar er eitt mest sótta vefsvæði landsins.

Mjög margir koma að efnisvinnslu hjá Reykjavíkurborg en vefurinn reykjavík.is er einn af efnismestu vefjum landsins. Í dag er áætlað að um 120 manns komi að viðhaldi vefsins og fer fjölgandi. Í upphafi næsta árs er gert ráð fyrir að efnisritarar fyrir öll vefsvæði Reykjavíkurborgar verði komnir vel yfir 200.

Lilja Ólafsdóttir, þáverandi forstöðumaður upplýsingatækniþjónustu Reykjavíkurborgar, sagði Reykjavíkurborg hafa látið gera athugun á ýmsum vefumsjónarkerfum sem í boði voru á markaðnum. „Þessi kerfi voru metin og niðurstaðan varð sú að ContentXXL kom best út. Kerfið fullnægði þörfum okkar og þeim skilyrðum sem við settum.“

Vitnisburður

Lilja Ólafsdóttir, þáverandi forstöðumaður upplýsingatækniþjónustu Reykjavíkurborgar,

"Reykjavíkurborg lét gera athugun á ýmsum vefumsjónarkerfum sem í boði voru á markaðnum. „Þessi kerfi voru metin og niðurstaðan varð sú að ContentXXL kom best út. Kerfið fullnægði þörfum okkar og þeim skilyrðum sem við settum.“